Wednesday, May 9, 2012

Mamma grautargerðarkona..

---

Það var opið hús í leikskólanum hjá Birki Ísak í dag. Þar var búið að hengja upp myndir sem hann teiknaði,ein af mér og önnur af Árna. Fyrir ofan myndirnar stóð "Hvað gerir mamma/pabbi?".

Og svörin hans Birkis míns voru vægast sagt skemmtileg. :)


Hvað gerir mamma?



"Hún blandar sokkum,fjólubláum. Hún gerir graut og býr til annan graut og annan og annan og annan. Hún púslar bíl. Hún setur sykur í og mjólk. Hún getur galdrað bangsa í burtu."


Hvað gerir pabbi?



Hann gerir ekkert,aldrei. Já..hann fer í vinnuna. Pabbi fer á æfingu og lúllar hjá mér á kvöldin."

---

Svo var annað spurningablað:


Hvað heitir þú:

Birkir Ísak Árnason

Hver er uppáhalds liturinn þinn?

Rauður,hann er rosa fallegur. Það er rautt ofan í jörðinni,eins og eldgos...eins og í risaeðlubókinni.

Hvað er uppáhalds bókin þín?

Bambi og Toy Story.

Hver er uppáhalds teiknimyndin þín?

Bangsímon,hann á hunang. Hann er með stóra bumbu því hann borðaði svo mikið.

Hver er besti vinur/vinkona þín?

Óttar Örn og Sigurást.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á leikskólanum?

Kubba,leika með dótið,lita. Ég leik með skóflu úti og set sand í fötuna.

Hver er uppáhalds maturinn þinn?

Grjónagrautur. Ég get borðað 6 skálar.

---



Yndislegt! 

:)


4 comments:

  1. Vá litli Snillingurinn.

    ReplyDelete
  2. nei of sætt!! sniðugar svona spurningar!! pabbi gerir ekki neitt! haha sætastur!

    systa

    ReplyDelete
  3. Þetta er nú bara alltof krúttlegt :)

    ReplyDelete
  4. hahahahahaha, pabbi gerir ekki neitt....nema æsa upp og gera allt köreisí (á mínu heimili sko)
    Ógeðslega krúttað hjá honum, rosa vanur og getur borðað 6 skálar...right;)

    ReplyDelete