Wednesday, November 30, 2011

vetrargleði..

Ég varð eiginlega pínu abbó þegar Róbert og Emil fóru út í snjóinn á Stiga sleðanum hans Emils. Ég tróð mér með í smá stund og tók af þeim myndir. Ég bað svo voða fallega um að fá að prófa eina ferð en þá varð Emil nú bara vandræðalegur á svipinn og sagði mér að hann væri bara búinn að eiga sleðann síðan um seinustu jól,svo hann var ekki alveg til í að hann brotnaði strax. Ekkert verið að skafa ofan af því..

---











---

Hvar fást annars ódýrustu Stiga sleðarnir? Eða er kannski ekkert til sem heitir "ódýr Stiga sleði"? :)

---

Að lokum langar mig að þakka allar kveðjurnar og hlýju hugsanirnar sem þið hafið senta Vigfúsi Blæ og okkur fjölskyldunni. Hann hefur það þokkalegt eftir atvikum,held honum leiðist aðallega að þurfa að vera á spítalanum. :) Batinn kemur með kalda vatninu... :)

---

Knús í bili!

r e g í n a :)

Saturday, November 26, 2011

Black Friday..

Ameríkanar meiga eiga það að þeir kunna að halda útsölur. Og ég má eiga það að ég er dugleg að nýta mér þær.

Black Friday var í gær eins og flestir vita,en þá er hátindi allrar útsölu klikkunar náð. Ég gerði rosa góð kaup,hamstraði einu buxurnar sem passa á mjóa spóalegginn minn hann Róbert Elí og svo sitthvað fleira í GAP og Old Navy. Ég skammast mín pínu yfir gleðinni sem heltekur mig þegar meldingin "your order is confirmed" birtist á skjánum hjá mér. Þetta er náttúrulega bara veiki. Ég ætla að vinna í þessu..fljótlega. Ekki fyrr en Árni er kominn heim samt. ;)

Ef það eru einhverjir sem eiga svona rosalega granna stráka eins og ég,sem þurfa að vera með hárband af mömmu sinni yfir mittið á joggingbuxunum sínum svo þær detti ekki niður um þá,,þá mæli ég hiklaust með :


Skinny Jeans frá GAP Kids. Þessi litur heitir MOD og er rosa flottur!


..og Five Pocket Pants,líka frá GAP Kids.

---

ATH! að í dag(laugardag) er ennþá Black Friday útsalan í gangi hjá GAP,plús auka 20 prósenta afsláttur við checkout.  

Gunnar Bergvin fékk sér svo svona fína töffara úlpu,sem kostaði 60 dollara en er núna á afslætti á 42 dollara. Við checkout,með 20 % afslætti kostar hún ca.34 dollara. 



---

Í gær bakaði ég lakkrístoppa og Lion Bar súkkulaðibitakökur. Ef einhvern langar að prófa nýja smákökuuppskrift þá eru Lion Bar kökurnar svo brjálæðislega góðar að þið verðið að prófa! PS. þær eru ekki beint "smá"kökur..þær verða svolítið stórar og flatar,en "chewy" útaf karamellunni í Lion Bar-inu. Nammmmmiii...

Kristín vinkona mín kynnti mig fyrir þessum kökum þegar við vorum báðar í fæðingarorlofi fyrir nokkrum árum,en þá gerði hún lítið annað en að baka og drekka appelsín. Stundum vildi ég að hún hefði aldrei sagt mér frá þessum kökum...því þær eru ekkert rosalega hitaeiningasnauðar.


Ef þessi yndis snillingur hefði ekki komið mér á bragðið,þá væri ég allavega 2-3 kílóum léttari...
---

Hér er uppskrift:

-Byrjið á að hræra vel saman:

1 egg
80 gr. smjör
150 gr. púðursykur

Bætið svo út í:

1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
1-2 tsk vanilludropar
160 gr. hveiti

Að lokum,saxið niður:

2 stór Lion Bar
100 gr. suðusúkkulaði

..og hrærið varlega saman við deigið.

-Deigið er mótað í litlar kúlur og sett á bökunarpappír á ofnplötu.
-Bakið í ca. 8 min.

-ATH. að kökurnar fletjast mikið út svo að ekki er gott að hafa of lítið bil á milli þeirra.



Bon appetit elskurnar!

---

Kv. re g í n a :)

Friday, November 25, 2011

Enn meira jóla..

Jólasnjórinn er mættur og ekki minnkar jólaandinn hjá mér við það. Um helgina skal baka eina-tvær sortir og jafnvel lagtertu líka. Það er nú fyrsti í aðventu á sunnudaginn og þá er orðið "löglegt" að skreyta og setja upp jóla seríurnar. Víííí.

---

Ég var svo óheppin að leggjast í ógeðis flensu,ljóta streptókokka sýkingu,hita og allan pakkann,en það hefur ekki náð að skyggja á jólaskapið. Ónei. En ég get sagt ykkur það að það er ekki gaman að vera svona mikið veikur en geta samt ekki annað en farið með börnin í skólann á morgnana,sótt þau seinnipartinn,fara í Bónus og þrífa heimilið. Ef Árni hefði verið heima hefði ég verið látin liggja í rúminu og fengið þjónustu. En oh well..nú er ég allavega hitalaus og er dugleg að bryðja verkjalyf. Þetta fer að verða búið.

---

Ég er búin að taka þá ákvörðun að vera með kalkúnabringur í matinn á aðfangadag. Og ég get ekki beðið eftir því að borða jólamatinn. Kalkúnn,fylling,sveppasósa,maísfrauð,sætkartöflu soufflé,ofnbakaðar kartöflur og rifberjasulta. Já takk. Frönsk súkkulaðikaka og heimtilbúinn Toblerona ís í eftirrétt. Ennþá meira já takk.


Thanksgiving kalkúnninn frá því í fyrra..

---

Eitt uppáhalds að lokum:




Monday, November 21, 2011

Alt muligt pizza.

---

..eftir 4 daga helgi,ein með hressu strákana mína,þá átti ég skilið að fá mér einn Thule(reyndar Lite,en það hljómar ekki jafn vel). Þá vantaði mig bara eitthvað til að hafa með bjórnum ;)

Ég gerði ótrúlega einfaldan og rosalega góðan pizzabotn á 2 mínútum:



250 gr hveiti
1.5 tsk lyftiduft
2 tsk oregano
2 msk olía
smá sjávarsalt
150 ml heitt vatn(soðið)



-Þurrefnin fara öll saman í skál,þeim hrært saman með skeið.
-olíu hrært út í og svo vatninu(hrært saman með skeiðinni bara,mjög einfalt).
-bætið meira hveiti við ef þarf. Þetta ætti að vera mjög mjúkt og þægilegt að vinna með.
-hnoðið deigið létt,og fletjið mjög þunnt út með kökukefli. 
-færið deigið yfir á bökunarpappír og inn í ofn á 180 gráður í 5 min.
-takið botninn út,setjið sósu og álegg eins og þið viljið.
-aftur inn í ofn þar til botninn er farinn að taka lit og osturinn orðinn gullinbrúnn.


-þetta dugar í tvo stóra botna,eða fjóra ca.9" botna.


-á minni pizzu var(í réttri röð): sósa,ostur,pepperoni,sveppir,rauðlaukur,tómatar,rjómaostur m.svörtum pipar og smá "dust" af osti aftur yfir í lokin.


-eftir að pizzan kom út setti ég svo spínat og fetaost ofan á hana.


Vessogú!





(PS. þetta er "óhollari" útgáfan af "friday pizza" uppskriftinni HÉR)

Prófið endilega! þetta tekur enga stund og er rosa gott. :)


---

r e g í n a

Saturday, November 19, 2011

Jóla..

---

Jólin eru óðum að pota sér inn á heimilið hjá okkur. 




---

Nýji jóladiskurinn með Michael Buble er á stanslausu repeat hérna heima,og ég er aðeins farin að læða smá jólaskrauti inn hér og þar. Búin að baka eina sort og hún er að verða búin...já ég skammast mín smá fyrir að segja það. En okkur þykir fátt betra en volgar súkkulaðibitakökur með ískaldri mjólk,það er bara þannig..




Það er bara eitt sem vantar,og það er Árni. Í dag eru 30 dagar í hann,sem þýðir að á morgun get ég sagt að það séu tuttugu og eitthvað dagar þar til hann komi. Rúmar 4 vikur...loksins finnst mér tíminn farinn að líða hratt aftur!

Það væri samt fínt ef hann gæti skutlast heim í 1-2 daga til að hjálpa mér að setja kransinn á útihurðina og jólaljósin á pallinn og í gluggana.. En kona hlýtur að redda sér,er það ekki???

---
Bæ í bili..
..þessi hérna bíður eftir mér
(fyrsta tilraunin í perutertu bakstri)
:)


---

Bless í bili kæra fólk,og eigið gleðilegan "35 dagar til jóla" dag. :)

Wednesday, November 16, 2011

Komasooo!

Róbert Elí var að keppa nokkra æfingaleiki í dag. ÍR strákar komu í heimsókn í Kórinn og þetta var voða gaman. Minn maður,búinn að æfa í 2 mánuði núna á meðan flestir eru komnir með 1-2 ár,var ansi skondinn. :D Hann er meira fyrir það að tuða í dómaranum og sínum eigin liðsfélögum en að reyna eitthvað að skora. Hann er alltaf að passa upp á það að enginn sé að svindla og að markatalan sé pottþétt rétt. En það kom nú eitt mark frá honum!  En honum fer mikið fram með hverri æfingunni og það er bara yndislegt að fylgjast með þessum flotta strák. Ég get ekki beðið eftir því að Árni komi heim og geti tekið þátt í þessu með okkur :)

---

Ég tók fullt af myndum..aðallega af Róberti og Emil..sem er orðinn ansi klár og er rosalega duglegur. Þeir eru bara flottastir,það er alltaf þannig. :) Við Sjöfn vorum náttúrulega bara í krúttkasti á hliðarlínunni...strákarnir okkar orðnir svo STÓRIR!








---

Það hefur margt breyst og þeir stækkað svo mikið síðan þeir hittust í fyrsta skipti fyrir 6 árum síðan:


:)

Tuesday, November 15, 2011

Öfugsnúnir dagar...

Sólarhringurinn minn er í svo miklu rugli eftir Seattle skreppið mitt. 8 klukkustunda tímamismunur,8 klukkustunda flug..ja það gerir ekki mikið fyrir líkama sem var mjög svo þreyttur fyrir.

Ég sef sem sagt allan daginn,vaki alltof lengi og vinn öll helstu heimilisverkin seint á kvöldin. Þvæ þvott kl.11,skúra á miðnætti..

Ég hef ekki einu sinni orku í að reyna að snúa þessu við..

Eins gott að ég sé "bara" heimavinnandi þessa önnina.

EN..núna eru 34 dagar í Árna..þá grunar mig nú að ég verði ansi dekruð af karli og fái að sofa mikið og lengi út. Oft,oft,OFT.


---

Nú ætla ég sumsé að hundskast í ból..kl.10 að morgni.


-En ekki fyrr en ég er búin að sporðrenna síðustu sneiðinni af yndislegu döðlukökunni sem ég bakaði á sunnudaginn. Er ekki annars allt í lagi að borða milljón kaloríu köku í morgunmat? Með heimatilbúinni karamellusósu? Og ís?

Það finnst mér allavega ;)

Góða "nótt".

---



Birkir Ísak sparar ekki karamellusósuna með kökunni sinni (ekki frekar en gráðug kerlingin móðir hans)

---

Saturday, November 12, 2011

Laugardagsbaksturinn...

---

"Gamaldags" möffins. 
Ekkert smjörkrem,ekkert skraut,ekkert fínerí. 
Bara þessar gömlu góðu, a la mamma







---

5 dl hveiti
250 gr. smjör
3 egg
4 dl sykur
1/2 tsk salt
1 tsk vanilludropar
100 gr rifið súkkulaði
1 dós kaffijógúrt
1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi

---

Hrærið sykri og eggjum saman.
Bætið þurrefnum saman við.
Hrærið svo smjöri,jógúrt,vanilludropum og súkkulaði saman við.

Bakið í miðjum ofni á 170 gráðum í 10-15 min.

---


---

Þessum leiðist það ekkert sérstaklega þegar mamma hans bakar:


Verði ykkur að góðu!

:)
---

Friday, November 11, 2011

Steve Jones..



..er gersamlega að skemma fyrir mér X- Factor USA gleðina. Hann er svo stressaður á tímanum alltaf hreint að ég er ómeðvitað farin að öskra á Paulu þegar hún byrjar að tala "koma svo Paula,wrap it up..við erum að falla á tíma kona!!!!" Allt Steve að kenna.

Svo sá ég einhverstaðar að hann hafi verið valinn einn af kynþokkafyllstu mönnum í heimi. Ég var ekki einu sinni búinn að taka eftir því að hann væri eitthvað sætur. Hann er svo asskoti leiðinlegur að ég bara fattaði það ekki.

Ég er greinilega ekki sú eina sem finnst maðurinn leiðinlegur. Það er strax farið að tala um það að það eigi að reka hann. Og að Cat Deely sé líkleg til að taka við..og jafnvel Khloe Kardashian..ég væri nú alveg til í að sjá það!




En eins og við í skemmtanabransanum vitum,þá skal ekki trúa öllu sem maður les..

en oh boy,ég vona að hann girði sig í brók blessaður..ég get ekki verið á skeiðklukkunni allan tímann á meðan ég horfi..

---

Kv. Regína sem eeeelskar annars X-factor.
(og Simon Cowell,en það er önnur saga...)

Tuesday, November 8, 2011

Surprise!

Jæja.. :)

Þetta skemmtilega sem ég var að fara að gera fyrir viku,var að fljúga 8 tíma til Seattle og mæta surprise í skólann til Árna,sem grunaði ekki baun í bala.

Þegar Árni sá mig varð hann eins og hann hefði séð draug. Já DRAUG segi ég! Svo fékk hann smástelpu gelgju hláturskast og á endanum varð hann að setjast niður til að jafn sig,ná andanum og átta sig á því að ég væri í alvörunni þarna inni á skrifstofu hjá honum. :)

Ég var svo hjá honum í 5 daga,og það var svo yndislegt og skemmtilegt og frábært og allt! Ég er svo asskoti vel gift að það er fátt sem toppar quality tíma með manninum mínum. :)









Seattle var í spari búningnum,æðislegt haust veður og allt svo fallegt og ég fékk rosa mikið Seattle sakn í hjartað.










Svona fyrir utan það að versla,þá fórum við t.d á stand up hjá snillingnum Kathy Griffin sem eyddi tveimur tímum í það að rakka niður fræga fólkið,þó aðallega Kardashian systurnar..og mömmuna auðvitað líka.

Svo lék hún Khlóe alltaf eins og hún væri alger flóðhestur miðað við systur sínar og sagðist alveg viss um að Kim væri bara að skilja núna því að mamma hennar væri akkúrat að gefa út bókina sína í sömu viku OG raunveruleikaþáttur yngri systranna var akkúrat að fara í loftið í sömu vikunni..hmmm...



---

Við fórum líka á leik hjá háskólaliðinu í ameríska fótboltanum. Þar voru mættar "nokkrar" hræður..eða 70 þúsund manns danke schön. Þvílík upplifun og ótrúlega gaman þó að Washington Huskies hafi tapað leiknum og ég hafi ekki fundið fyrir löppunum á mér fyrir kulda í hálftíma á eftir.







En ég verð nú að viðurkenna að það fór mikill tími í það að versla. Núna eru jólagjafirnar alveg klárar..aaaah. Góð tilfinning. Svo þurfti ég að bæta á birgðirnar af ýmsum amerískum "nauðsynjum". Eins og t.d:


Nestlé Toll House kökudeig. Uppáhalds: chocolate chip lover. Mmmmm...


ELF varagloss. Bestu gloss í heimi! 3 í pakka á 5 dollara í Target. Ég á ansi laglegan lager af þessu..


Victoria´s Secret body spray og body lotion(get ekki notað ilmvötn)..uppáhalds: Heavenly og Tease:




Ný snilldar uppgötvun í VS:







Ilmkerti og sápur frá Bath and bodyworks:

(pineapple mango er uppáhalds kertið mitt)

Gerðum okkur sérferð í Costco bara til að kaupa okkur Macademia Clusters-salted caramel..mmmm!



Jólanáttfötin eru líka komin í hús..Target eins og vanalega fyrir okkur hjónin..
 ..og Carter´s á strákana:


Svo báðu jólasveinarnir mig um að gera sér greiða og versla í skóinn fyrir þá..ég reddaði því að sjálfsögðu,enda þæg stelpa. :)


---

Yndisleg ferð og alltof erfitt að kveðja. En nú heldur niðurtalningin bara áfram..40 dagar í Árna og venjulegt fjölskyldulíf. Ég get ekki beðið!!

:)