Monday, October 31, 2011

Kósítime!

Já hverjum finnst ekki kósí að baða sig upp úr MJÓLK og skyri?

Gunnari mínum virðist þykja það rosalega fyndið allavega..

Ég held að ég væri ekki alveg svona hress við þessar aðstæður svei mér þá..







-já ég veit ekki hvað skal segja..?

:)

Friday, October 28, 2011

Sunnudagskakan..

..Ég eyddi fimmtudagskvöldinu mínu í það að baka uppáhalds súkkulaðikökuna mína. "Sunnudagskökuna". Mamma mín er baksturs-óð,og ég held það sé henni "að kenna" að mér finnist að helgin meigi ekki líða án heimabaksturs. Og þá verður þessi kaka ansi oft fyrir valinu.


---

Róbert Elí kemur snemma heim úr skólanum á föstudögum og ég ætla að reyna að standast blessaða kökuna þar til hann kemur heim svo að við getum fengið okkur saman.

Ég hef nefnilega alveg verið staðin að því að klára heila köku svo gott sem alein. Ég hef þurft að ljúga mig út úr svoleiðis atvikum,hef t.d sagt að ég hafi óvænt fengið gesti..en kem svo upp um mig með súkkulaði á nefinu og í peysunni jafnvel. Og einu sinni á bakvið eyrun m.a.s.

Ég skil ekki hvernig fólk fer að því að borða súkkulaði án þess að klína því útum allt. Mig langar að kunna það.

---

Hér er uppskriftin af uppáhalds skúffukökunni minni. Ég geri hana yfirleitt í tveimur hringformum,en hún er aðeins of lítil í stóra skúffu. En hún er fín í litla skúffukökuformið mitt.

Deig:

4 1/2 dl sykur
175 g lint smjörlíki
2 egg
4 1/2 dl hveiti
1 tsk. natron
1/2 tsk. lyftiduft
1 1/2 dl vatn (kalt)
3 tsk. vanillusykur
1 dl. kakó (dökkt)
1 tsk. salt
2 dl súrmjólk

Hrærið sykri,smjöri og eggi saman þar til létt og ljóst.
Bætið þurrefnunum út í og hrærið.
Stillið á minnsta hraðann og hellið súrmjólk og vatni rólega út í.
Hrærið þar til deigið er orðið "létt".
(Munið að skafa innan úr hliðunum á skálinni og hræra pínulítið aftur.)

Hellið í form og bakið á 180 gráðum í 25-35 min.

Krem:

100 gr brætt smjörlíki
Ca. 6 dl flórsykur
3 1/2 msk. kakó (dökkt)
Uppáhellt kaffi(má vera svolítið sterkt)
3 tsk. vanillusykur

Flórsykri og smjöri hrært vel saman.
Vanillusykri og kakó hrært saman við.
Kaffi hellt út í þar til rétt þykkt er komin á kremið(eina matskeið í einu).
Kremið á ekki að vera of þykkt.

Það er ekkert kaffibragð af kreminu,svo að engar áhyggjur þið sem eruð ekki svo heppin að drekka kaffi.

Játning dagsins: Ég tvöfalda krem uppskriftina. Því að ég er svo mikil súkkulaðiskessa og svo er það barasta ekkert alltaf þannig að "less is more". 

Kreminu er hellt yfir kalda kökuna og látið standa í allavega hálftíma.

Ég strái svo kókosmjöli yfir..það minnir mig svo á skúffukökuna hennar mömmu.
(en þegar ég á ekki kókosmjöl fegra ég kökuna með smá flórsykri)

Svo algert möst að sporðrenna henni með ísköldu mjólkurglasi.


Ég myndi sýna ykkur mynd en stóra vélin mín er látin,blessuð sé minning hennar!


---

Bon appetit elskurnar!

---

regína

:)


---


PS. ég stóðst kökuna ekki. Hér sit ég kl 10 að morgni,búin með eina sneið og langar í aðra. 
-Já ég er algjör skessa.


---


Hér er mynd af því þegar ég notaði uppskriftina til þess að gera cupcakes.
Svo brjálæðislega jömmí! 





Sunday, October 16, 2011

Sunnudags.

Kósýkvöldið okkar Róberts náði nýjum hæðum seinasta fötudagskvöld þegar Maggi vinur hans Árna mætti með sendingu frá mínum yndislega eiginmanni. Ég fékk svo falleg og fín blóm og svo fengu strákarnir allir pakka úr dótabúðinni.





Takk aftur elsku Árni minn og takk Maggi fyrir að vera hans sérlegi aðstoðarmaður. :)

Nú sakna ég hans Árna míns bara enn meira! En á morgun eru liðnar 4 vikur síðan hann fór út. Það er allavega ekki hægt að segja annað en að tíminn líði hratt sem gerir þetta auðveldara.

---


Ég er farin að fá mér rótsterkt sunnudagskaffi til að reyna að fá smá skammt af auka orku eftir veikindahelgi og lítinn svefn undanfarnar vikur..Ég ætla svo að gæða mér á þessari elsku með..


Gleðilegan sunnudag elsku þið!

Friday, October 14, 2011

Föstudags..

Föstudagskvöld eru kósíkvöld hjá okkur Róberti Elí. Þá komum við yngri strákunum í háttinn, fáum okkur pizzu,borðum Djúpur og Þrista og horfum á  The X Factor. Kvöldið í kvöld er þar engin undantekning.

Við vorum að ræða þetta aðeins þegar þessi ofur fyndni krakki minn tók í höndina á mér,starði framan í mig og sagði:

"Kvöldið er okkar beibí."


Það er nebbla það já..

Sunday, October 9, 2011

3 vikur..and counting!

Nú er ég búin að vera "einstæð" í 3 vikur. Ég verð nú að viðurkenna að þetta er búið að vera auðveldara en ég bjóst við. Ég hef aldrei í lífinu verið jafn skipulögð. Ef skipulagið klikkar,þá er allt ónýtt.

Ég er m.a.s loksins búin að taka upp úr öllum kössum! Það er rosa afrek,því að eg lýg því ekki að íbúðin var yfirfull af stútfullum kössum sem mig kveið svo mikið fyrir að taka upp úr. Herbergið okkar Árna var t.d ALVEG fullt af stórum kössum. En ekki lengur,jibbí!!

---

Við hjónin fengum þá afbragðs hugmynd að skipta um herbergi við Róbert og Birki,sem eru saman í herbergi. Við ætlum þá að hafa lítið og kósý hjónaherbergi og leyfa þeim að eiga stórt og flott strákaherbergi í hjónaherberginu í staðinn. EN..til þess að þetta sé allt hægt þá þarf að taka hjónarúmið í sundur OG kojuna þeirra líka. Og það tók Árna mjööög langan tíma að setja þessa koju saman.

Svo að þessu verður ekki hrint í framkvæmd fyrr en Árni verður kominn heim. Sem Fröken Óþolinmóð er ekki að gúddera. Það þarf auðvitað allt að gerast í fyrradag hja mér. Og mjög erfitt fyrir mig að sætta mig við það þegar hlutirnir ganga ekki nógu hratt fyrir minn smekk.

Ég tók mig sem sagt til í vikunni og tók herbergið þeirra bræðra í gegn. Ég fór í gegnum ALLT dótið þeirra,sorteraði allt og fann stað fyrir allt þetta smádót,legó,risaeðlur,playmó og þetta tók mig ekki nema tvo og hálfan tíma takk fyrir. Ég viðurkenni það hér með að þeir eiga alltof mikið af dóti!

EN ég er ánægð með herbergið þeirra,það er voða plein og verður þannig á meðan ég held áfram að breinstorma hvernig ég ætla að hafa herbergið það. Ég er svo tóm að þá hálfa væri hellingur.

Svona er herbergið þeirra núna:




Hin hliðin á herberginu er svo óspennandi að ég nennti ekki að taka myndir af því. :) Þar eru bara dótakassar,hvít hilla og tómur hvítur veggur. Ég ætla nú ekki að dunda meira við þetta herbergi fyrr en þeira fara í stóra herbergið.

---

Annað verk sem bíður þess að Árni komi heim er fína borðstofuborðið sem við gerðum saman(mest hann samt). Borðplatan stendur inni í stofu hjá mér,en það þarf að bora hana fasta á borðfæturna og ég hætti mér ekki í það. Ég myndi klúðra einhverju og væntanlega slasa mig í leiðinni. Ég og borvél erum ekkert rosalega góðar vinkonur.

Ég hlakka til að sýna ykkur þegar borðið er tilbúið,borðplatan er allavega rosa flott. ;)

---

En nú þarf ég að skjótast með Róbert Elí á fótboltaæfingu.

Eigið góðan sunnudag,í (loksins) góða veðrinu. :)

regína


Wednesday, October 5, 2011

Seattle sakn.

Dagurinn í dag er "ég sakna Seattle" dagur.



















Ég get ekki beðið eftir því að komast þangað í desember og hitta Árna minn! :)

Seattle deilir eftsa sætinu yfir uppáhalds borgirnar mínar með uppáhalds New Yorkinni minni. :)

---

Nú er bara að telja niður: Ca. 60 dagar í Seattle för.
..eins gott að halda áfram að halda sér upptekinni svo að tíminn líði nú!

---