Thursday, March 29, 2012

Tölvuleysi..

---

..já tölvu-háða kerlingin ég, er búin að vera tölvulaus í viku. Og stefnir í 2 vikna tölvuleysi í viðbót. Tölvu"krúttið" tók kast og þarf últra yfirhalningu. Gaman. -eða ekki.

---

Ég reyni nú samt að henda einhverju skemmtilegu hér inn á næstunni. Litla barnið hún Aldís Björk systir mín fermist á sunnudaginn og það er nóg að gera og baka fyrir veisluna.

..meira seinna!

r e g í n a :)

---


Tuesday, March 20, 2012

Brjál að gera..

---

..já það er búið að vera brjál að gera seinustu vikurnar og ekki sér fyrir endann á því. Það er nú samt bara gaman,þá líður tíminn hraðar og sumarið kemur kannski loksins! :)

Nú er ég allavega búin með árlega flugfreyjunámskeiðið,það er alltaf gott þegar það er búið. Ég hlakka svo til að fara að fljúga aftur með öllu skemmtilega fólkinu.. :)

---

Það eru stórir dagar framundan,fullt af afmælum og svo fermist litla dýrið hún Aldís Björk 1 apríl. Hún sem er svona nýfædd...næstum því allavega.

Tengdamamma mín verður sextug eftir viku,mamma mín á afmæli nokkrum dögum eftir það,og svo eru það Gunnar Bergvin,Árni og Birkir Ísak sem eiga afmæli í apríl. Ég verð bara bakandi og pakkandi inn afmælisgjöfum eins og enginn verði morgundagurinn. Gaman samt. :)

---

Nú ætla ég að hendast út að hlaupa,þetta er allt að koma. Svo gott hvað maður er snöggur að ná hlaupaforminu upp aftur. Ég verð vonandi orðin eins og raketta áður en sumarið kemur ;)

Bæ í bili!

---

Nokkrar myndir með að vanda:

Gunnar Bergvin að frumsýna nýtt myndavélarbros:



Krútt að leika inni í herbergi:



Handboltahetjan á heimilinu:




Gunnar litli datt í leikskólanum og tennur fóri í gegnum húð. Fyrsta slysó heimsóknin.


Róbert Elí fékk loksins bekkjarbangsann Felix í helgar heimsókn:


Gunnar á baki:


Tjarnar leiðangur:



Þessi sko..bestur :) :


Krúttkast:


---

Monday, March 12, 2012

It´s on!

---


..nú er löngu orðið tímabært að ég fari að dusta rykið af hlaupaskónum og Garmin úrinu,og komi hlaupaforminu á fullt swing aftur.


Mission "10 kílómetrar fyrir 1 júní" er nú formlega ON.


Góði vin Tumblr.com klikkar ekki þegar mann vantar smá hvatningu til að koma sér út:


---







---

..alveg merkilegt hvað maður getur verið lengi að mana sig upp í það að fara út að hlaupa,en um leið og maður er byrjaður þá er það alltaf jafn gott. 


---


Friday, March 9, 2012

Leti..bloggleti..

Annað slagið týni ég blogg gleðinni og hugsa með mér "Ég kannski loka þessu bloggi bara..".
Ég er að rembast við að koma mér í gírinn aftur.

Á meðan ég reyni að finna minn innri bloggara hendi ég bara inn myndum í staðinn fyrir hið ritaða orð..

Hér eru nokkrar vel valdar og mjög vel ritskoðaðar myndir frá yndislegri vinkonuhelgi í Húsafelli. Það sem maður hefur gott af svona stelpuferðum!

Vessogú.

---












































 ---

Þetta verður sko endurtekið að ári. Fo sho!