Saturday, September 24, 2011

Litlir kassar á lækjarbakka.

Sama hvað ég tekk upp úr mörgum kössum,þá virðist ekkert grynnka á kassaflóðinu. Sjitt,ég vissi ekki að við ættum svona mikið af dóti!  Ég er búin að taka síðustu daga í það að fara í gegnum geymsluna og selja út úr henni. Er strax komin í ágætis gróða sem kemur sér vel,enda bara korter í jól. ;)

Ég mæli með því að fólk fari í gegnum geymslurnar hjá sér og selji hlutina sem liggja ónotaðir. Það eru nefnilega merkilega miklir fjármunir grafnir í geymslum hjá fólki. Og hver vantar ekki auka pening þessa dagana?

Ég ætla svo fljótlega að skella mér í Kolaportið og selja föt og með því..

---

Eins og ég hef sagt áður þá er ég rosalega ánægð með setu-og borðstofuna okkar. Það er ekki mikið eftir að gera þar,annað en að hengja á veggi,setja upp borðstofuljósið og svo auðvitað að skipta út borðstofuborðinu. Það á bara eftir að bora borðplötuna fasta á fæturna og lakka eina umferð í viðbót og þá er það reddí tú gó!

---

En sjónvarpsstofan er langt frá því að vera tilbúin. Ég á eftir að skipta út slatta þar svo ég verði sátt. Ég dunda mér ábyggilega við það næstunni. Ég ætti að geta það allt saman sjálf..nema að hengja sjónvarps ferlíkið upp. Ég þarf eitthvað heljarmenni í það. ;)

Mér finnst gott að taka myndir og skoða í tölvunni og brainstorma þannig hvað ég geti gert. Ég hef ágætis hugmynd um hvernig þetta verður. Engar gríðarlegar breytingar,en samt breytingar sem á eftir að muna mikið um. Hér eru "fyrir" myndirnar mínar(með hugmyndunum um breytingu). Ég skal svo setja inn "eftir" mynd þegar þetta er tilbúið.

---

Barnaherbergin eru svo alger hausverkur. Ég hélt ég væri með það allt fullkomnlega planað,en plönin eru fokin út um gluggann svei mér þá. Ég ætla að taka mér góðan tíma í það að plana herbergin,ég vil ekki hlaða húsgögnum inn nema vera alveg fullkomnlega sátt við það. Strákarnir hafa allavega rúmin sín og dótið á meðan. Enda finnst þeim þeir ekki þurfa neitt annað. :)

---

En nú er ég þotin. Fyrsta helgina mín ein með strákana og það er eins gott að gera eitthvað skemmtilegt með þeim. :)

Bless í bili,

r e g í n a

:)

Tuesday, September 20, 2011

Flutt!

Jæjæ,þá erum við flutt. Loksins! Þvílík vinna sem það er að flytja. Og þvílíkt sem við erum heppin með vini og fjölskyldu! Við hefðum aldrei náð að mála og flytja á þeim stutta tíma sem við höfðum,ef við værim ekki með svona mikið af yndislegu fólki í kringum okkur sem nennti alveg endalaust að hjálpa okkur.

Núna er komin ágætis mynd á stofu og eldhús,en herbergin eru enn full af kössum og að koma þeim í ágætis horf er eitthvað sem ég dunda mér bara við á næstunni,enda Árni minn farinn til Seattle og kemur ekki heim fyrr en rétt fyrir jól.



Hann fór í gær og það var ekki það auðveldasta sem ég hef gert,að horfa á eftir honum á flugvellinum. :(

Nú er Róbert Elí líka orðinn svo stór að hann fattar það alveg hvað það er sorglegt að pabbi verði ekki hjá okkur í rosa langan tíma. Hann er voða leiður yfir því og þá verður þetta enn erfiðara.



En við erum víst ekki eina fólkið í heiminum sem gengur í gegnum svona tímabil,þetta á eftir að líða hratt með hjálp góðra vina og þéttskipaðri dagskrá. :)

---

En við héldum smá innflutningspartý á laugardaginn. Klukkutíma fyrir mætingu var stofan enn á rúst. En þetta hafðist og Árni tók á móti fyrstu gestunum í málningargallanum. En kvöldið var æði,ótrúlega gaman og ég endaði m.a.s kvöldið í tryllltum dansi í bænum með yndislegu og ógeðslega fyndnu vinkonum mínum.

Nokkrar myndir af frábæru kvöldi:












































---

Takk fyrir skemmtilegt kvöld allir! :)

---


En nú þarf að sækja þrjá sæta litla stráka í skólana sína,koma einum á frjáls íþrótta æfingu og standa í ýmsu stússi. Rosalega er maður bissí svona "single". 

Bæ í bili,

Grasekkjan!



Tuesday, September 13, 2011

Gamli vin.

Stóra vélin mín er loksins komin úr hreinsun. Það sem ég saknaði þessarar elsku,sem er búin að vera minn dyggi þjónn í 5 ár.




Nú er að koma sér aftur í ljósmyndagírinn..!

---

Við fáum íbúðina svo á morgun,miðvikudag. Áttum að fá hana í gær,en vegna smá misskilnings verður það ekki fyrr en á morgun. Svo að það verður allt sett í fjórtánda gír og allir ræstir út í einhver verkefni. Beware kæru vinir! :)

Svo verður partei á laugardaginn! Það viðurkennist hér með að ég hef ekki skrallað almennilega í meira en heilt ár. ÁR. Rosalegt alveg hreint og auðvitað til háborinnar skammar. Mikið ofboðslega hlýt ég að verða hress á laugardaginn.

Það verður væntanlega allt á rúst í íbúðinni,en gestir verða bara að láta sig hafa það í þetta skiptið. Ég verð svo búin að gera rosa fínt fyrir útskriftar partýið hans Árna þegar hann kemur heim. :)

---

En jæja,nú skal tækla nokkra hluti af alltof langa to do listanum!


regína
---

Saturday, September 10, 2011

Heimþrá og söknuður í allar áttir..

Ég skrifaði á gamla bloggið mitt fyrir ca. mánuði síðan að ég væri svo ánægð með það að vera komin heim og þrátt fyrir að hafa notið Seattle dvalarinnar í botn,væri ég bara Íslands lover og greinilega ekki "búa í útlöndum týpan."

Uuuuu..við skulum bara sópa þeirri yfirlýsingu undir teppið með det samme. Undanfarna viku hefur gert vart við sig þessi líka rosalegi Seattle söknuður. Söknuðurinn magnast á hverjum degi og nú er svo komið fyrir undirritaðri að ég skoða reglulega vefmyndavél í beinni af uppáhalds stöðunum í uppáhalds borginni og sit svo með tár niður á axlir og snýti mér hressilega í vasaklútinn(eða..svona næstum því). Það er svo ekki að hjálpa til að í Seattle er búið að vera geggjað SUMAR(íslendingar spyrja sig væntanlega "Sumar? hvað er það?") að undanförnu;heiðskírt og 30 gráður plús upp á dag.

Á meðan frýs ég bara í hel í 7 gráðunum og vindkælingunni hérna á Íslandi.

Nei nei,svo bitur er ég nú ekki alveg. Ég vildi hvergi annarstaðar vera akkúrat núna en á Íslandi. Ísland er besti staðurinn fyrir strákana mína í dag,og Ísland er bara best. En ég sakna samt Seattle. Miklu meira en mig hefði grunað. Alveg miklu MIKLU meira.

Í gærkvöldi þegar við Árni vorum á leiðinni á smá kvöldrúnt,ég gersamlega sliguð(kannski ekki alveg svo dramatískt,en samt..) af Seattle söknuði,þá sá þetta yndislega fallega Ísland mitt um að kippa mér niður á jörðina aftur. Á himninum var nefnilega þessi líka þvílíka Norðurljósa sýning. Ég hef ekki séð svona björt og lifandi Norðurljós síðan ég veit ekki hvenær. Þau voru pottþétt bara þarna til þess að ég myndi hætta þessu voli og væli um einhverja borg í hinni klikkuðu(en samt ó svo yndislegu) Ameríku.

Þetta hefði ég aldrei séð í Seattle. :)

---

Nú eru bara 9 ógeðslega alltof stuttir dagar í það minn heittelskaði yfirgefi hinn réttnefnda Klaka og haldi til hennar sígrænu Seattle minnar. Mér finnst það ógeðslega sorglegt,jisús.

Ég ætla að reyna að hugsa ekki um það fyrr en ég kveð hann á flugvellinum. Sjáum til hvernig það gengur...

---

Nóg um að vera næstu daga: mála,flytja,smíða,bora,negla,taka upp úr kössum,setja saman húsgögn. Bissí bissí bissí!

Nú erum við búin að ákveða litina á hvert herbergi svo að þá er bara að drífa sig að kaupa málninguna.

Dökkgrár inni hjá Róberti og Birki(einn veggur)


Fallegur og bjartur gulur inn til Gunnars(einn veggur):


"Sveppagrár" inn í hjónaherbergið(allir veggir). Við höfum verið með sama litinn síðan 2005 :) 
Ótrúlega þægilegur litur í svefnherbergi.


---

En nú er kominn tími á morgunskokk í fallega kalda veðrinu :) Ég ætla að reyna að vekja Árna og draga hann með mér. Ég næ að hlaupa svo mikið lengra ef ég get blaðrað á meðan ég hleyp.

---

REGÍNA

---

Nokkrar myndir í restina: