Monday, August 29, 2011

Róbert Elí..

Stóri strákurinn okkar varð 6 ára um helgina. Það er búið að telja niður í þennan afmælisdag í heilt ár,og loksins kom hann! Mér finnst svo stutt síðan hann fæddist,litli sólargeislinn minn og allsherjar gleðigjafinn sem hann er.

Og nú er hann barasta orðinn 6 ára fluglæs skólastrákur. Ótrúlegt.

-----

Hér er hann pínupons:


Og svo 6 árum síðar:


Yndislegur! :)

-----

 ..og í gær þegar ég spurði hann hvort við ættum að fara að raka hanakambinn af honum sagði hann 
"NO,I want all the kids at school to think that I´m the coolest boy in the city".


Og hananú.

Wednesday, August 24, 2011

Heima er best.

Það er gott að vera komin heim. Þrátt fyrir svefnlausar nætur,drasl út um allt og svei mér þá ansi kalt og óspennandi veður(fyrir utan daginn í dag), er það ótrúlega ljúft að vera komin til Íslands. Nú eru strákarnir mínir(fyrir utan litla Gunnar Bergvin) byrjaðir í skólunum sínum og rútínan að komast á. Ég elska rútínu. Elska.

-----


"Nokkrar" myndir síðan við komum heim:























Skemmtilegt! :)


Tuesday, August 23, 2011

Spennandi tímar.

Það er stór dagur í dag á okkar heimili. Birkir Ísak er einn í leikskólanum í fyrsta sinn(aðlögun gott sem lokið) og Róbert Elí er formlega byrjaður í 6 ára bekk! Hann vaknaði með sólskinsbros á vör og sagði með stírurnar í augunum "JIBBÍ,SKÓLI!". Það er búið að bíða eftir þessum degi lengi.

Til í slaginn!