Sunday, February 26, 2012

Ameríku kreivings..

---

Mig langar svo í...




.. BLT pizzu á California Pizza Kitchen




..Mocha Frappuchino Light með kókos. Nammmi já takk.




.."smá" verslunarferð í Target.




..göngu/hlaupatúr í kringum Green Lake,Seattle.




..smá grams leiðangur í Ross. 




..franskarnar á Piatti.




..Oreo McFlurry! 




..amerískt bíópopp og kók.




..Mac and cheese balls á Cheesecake Factory.




..Amber Ale Chicken Sandwich á Ram Restaurant.





..og síðast,en ekki síst. Einn ískaldan Sam Adams.

---

Það fer væntanlega ekki framhjá neinum að ég er mjög svöng þegar ég skrifa þetta. Og í maga mínum býr feitur Ameríkani, og alltaf þegar ég verð mjög svöng þá langar mig bara í eitthvað rosalega feitt og yndislegt. Mmmmm. Feiti Ameríkaninn í maganum á mér slefar yfir þessari færslu. 

En skynsami Íslendingurinn í mér sem þykist ráða einhverju ætlar að fá sér eggjahræru með fullt fullt af grænmeti. 

Það bara hljómar engan veginn jafn vel og djúpsteikt Mac&cheese..

..engan veginn.

---

Ég er ekki oft pirruð. En ef ég er pirruð þá vitið þið að ég er svöng. Svo að þá er ráð að gefa dýrinu að borða. Og ekki bjóða mér epli þegar ég er svöng. Nema náttúrulega þið viljið kynnast mjög leiðinlegri og frekar mikið ljótri hlið á mér.

Þetta er svolítið mikið ég:




---

..en jæja..eggjahræra reddí!

-regína farin!

bæjó :)


Thursday, February 23, 2012

Myndasíðan..

..ég setti inn þrjú ný albúm inn á myndasíðuna mína,sem hefur legið í dvala alltof lengi. Mér finnst svo gott að hafa myndirnar svona á einum stað og mér finnst svo gaman að skoða aftur í tímann án þess að þurfa að sækja flakkarann og tengja við tölvuna. 

Passwordið á myndirnar er það sama og alltaf. :) 

Þetta eru allskonar myndir..úr símanum,af instagram,myndavélinni..Myndir sem þið hafið séð,myndir sem þið hafið ekki séð..unnar myndir og allt bara í einum graut.

Vessogú!




---

Annars er ég bara heima með Róberti Elí sem er í vetrarfríi. Voðalega huggó hjá okkur.. :)

Um helgina erum við hjónin svo að fara á hótel og ætlum að eiga barnlausan sólarhring. Út að borða,sofa út. Brunch. Hljómar ekkert rosalega illa. :)

Bæ í bili!


r e g í n a :)

Sunday, February 19, 2012

Gunnar Bergvin.

---

Já loksins! Þá er búið að skíra litla barnið mitt,sem verður 2 ára eftir einn og hálfan mánuð. :)

Það er sko svolítið öðruvísi að halda á 2 ára hlunki undir skírn,en að halda á sofandi ungabarni. Gunnar Bergvin var ekki alveg að fíla þetta,og þegar presturinn fór að skvetta á hann vatni vissi hann ekki hvert hann ætlaði,hann var svo illa móðgaður. En um leið og athöfnin var búin stökk hann í fangið á prestinum og talaði heillengi við hann. :)

Athöfnin var hér heima og svo vorum við með veislu fyrir okkar nánasta. Yndislegt. Og nóg að borða!


Er til flottara skírnarbarn?? :)






---

..og nóg var af kræsingum..



---

Ég á von á vinkonum í hádegismat á morgun. 
Þessir afgangar éta sig ekki sjálfir. :)

---


Þetta barn er svo mikill gleðigjafi að það hálfa væri hellingur! :)

---

Friday, February 10, 2012

Róbíinn minn..

---

Róbert Elí kom heim með fyrsta heimilisfræði baksturinn í dag.

 Hann fræddi mig skref fyrir skref um það hvernig maður bakar brauð og sagði mér að ég ætti endilega að prófa það við tækifæri,það væri sko ekkert mál. 

Svo sagði hann "en ef þú reddar mér hveiti,eggi og mjólk þá skal ég bara gera þetta því að ég kann náttúrulega að baka brauð." 

Ég ákvað að vera ekkert að minna hann á öll skiptin sem hann henfur fengið heimabakað brauð. ;)

---


 

Stoltur með brauðbollu R-ið sitt.

---

Wednesday, February 8, 2012

Kaldar hnetusmjörs núðlur.

---

Þegar ég var 11 og 12 ára fór ég með Ástrósu frænku til New York. Þar vorum við hjá frænku okkar að passa litlu stelpurnar hennar og kynnast Ameríku í fyrsta sinn. Yndislegir tímar sem eru alveg pottþétt grunnurinn að Ameríku sýkinni minni.

Í eitt skiptið fórum við til Manhattan og vorum í nokkra daga. Þar smakkaði ég kaldra núðlur með hnetusmjörs bragði og átti ekki til orð. Nammi!

Ég er búin að vera að leita að góðri uppskrift af einhverju svipuðu,en ekki fundið neitt sem mér leist nógu vel á. Svo að ég prófaði mig bara áfram. Og svei mér þá. I did it.

Þessi réttur er ÆÐI,og rosalega einfaldur og snögglegur.

---

Núðlur:


Núðlur eftir smekk. Ég notaði heilhveiti núðlur.
2 stórar gulrætur
1/2 ferskur rauður chili pipar
Steinselja

---

-Byrjið á því að sjóða núðlurnar eftir leiðbeiningum á umbúðunum. Tekur ekki nema ca. 4 min.

Á meðan skerið þið gulrætur,chili og steinselju smátt niður.

Þegar núðlurnar eru soðnar látið þið vatnið renna af þeim og skolið þær undir köldu vatni,þar til þær hafa kólnað alveg.  Látið allt auka vatn renna af.

Blandið skorna grænmetinu saman við núðlurnar og hrærið varlega saman.


SÓSAN:

4 msk. mjúkt hnetusmjör
3 msk púðursykur
1 msk. rauðvínsedik
4 msk kókosolía
4 msk soyasósa
1 msk sesamolía
1 tsk rifinn,ferskur engifer
hálf tsk. svartur pipar
Hálfur rauður chili,skorinn smátt

Öllu hrært vel saman. Athugið að sósan er mjög bragðsterk ein og sér.

---

Blandið sósunni saman við núðlurnar. Setjið eina msk. af henni í einu og hrærið núðlunum varlega saman við,þar til núðlurnar eru allar komnar saman við sósuna. Passið að drekkja þeim ekki í sósunni.

Stráið cashew hnetum,steinselju,gulrótum og grænum lauk yfir og voilá!





Núðlurnar eru líka æðislegar kaldar,daginn eftir. Frábært nesti í vinnuna eða skólann.

---


Prófið!
-þið eigið ekki eftir að sjá eftir því..

:)

 ---

Monday, February 6, 2012

Brownies

---

Ég er búin að vera veik alla helgina..og er enn. Óendanlega leiðinlegt.

En ég "lyfti mér örlítið upp" í gær og bakaði smá.


Amerískar brownies:




-Stillið ofn á 180 gráður

120 ml. olía
2 dl. sykur
2 egg
1 dl. hveiti
80 gr.kakó
1/2 tsk salt
1/2 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar

-Hrærið olíu og sykri vel saman
-Bætið eggjum og vanillu saman,hræris aðeins þar til allt er komið saman
-Blandið öllum þurrefnum saman í aðra skál
-Bætið þurrefnunum saman við eggjamixtúruna

-Spreyið lítið eldfast mót og hellið mixtúrunni útí.
-Bakið í ca 20 min,eða þar til hliðarnar eru farnar að losna frá
-Kælið alveg áður en þið skerið.

---

Ekta íslenskar pönnsur:



250 gr. hveiti
1/2 tsk lyftiduft
50 gr. sykur
1 tsk salt
2 egg
25 gr. smjör
250 ml. mjólk

-Þurrefnum er blandað saman
-Helming af mjólkinni er bætt út í
-Eggjunum hrært saman við
-Restinni af mjólkinni bætt út í

Ég sver það að ég held ég viti ekkert betra en íslenskar,volgar pönnukökur. 
Veeeel sykraðar  að sjálfsögðu;)

---


-þessi stók sko hraustlega til matar síns. Aldrei þessu vant.

Sunday, February 5, 2012

Yum..

---

Svo gott!

Ég er búin að vera obsessed með þessa tómata eftir að ég fékk þá fyrst hjá Möggu vinkonu minni sem er alger höfðingi heim að sækja.

Svo einfalt,og sýnir að það er ekki alltaf þörf fyrir brauð!



Tómatur,pestó eða ólívuolía,ferskur mozzarella og nóg af ferskri basilíku.

Yum-o!


---

Wednesday, February 1, 2012

Pekanbaka..

---


Þar sem ég rembist eins og rjúpan við staurinn þessa dagana við það að borða hollt,þá hef ég verið ansi hugmyndasnauð í eldhúsinu að undanförnu. Sérstaklega þegar kemur að bakstri. Ég lít venjulega ekki við bakkelsi ef það er ekki kíló af smjöri í því og annað eins af sykri. Sönn saga. -eða svona næstum því.

Uppáhalds sjónvarpskokkarnir mínir,og hreinlega bara mínar helstu matreiðslu fyrirmyndir,eru Nigella,Ina Garten og Paula Deen. Og það vita þeir sem til þekkja að þessar þrjár spara ekki smjörið!




                                                     ---

EN,ég fór á netvapp í leit að köku sem ég gæti skellt í og borðað með góðri samvisku.  Þar stóð Cafe Sigrún vefurinn upp úr sem endranær. Þar er af nógu að taka. Ég valdi ÞESSA uppskrift, hún leit út fyrir að geta glatt súkkulaði elskarann ,og svo átti ég allt í hana. Að ég hélt.

Ég gerði botninn alveg eftir bókinni. Svo þegar kom að því að gera fyllinguna þá komst ég að því að ég átti ekki banana. Ég notaði sem sagt eina msk. af Bertolli smjeri í staðinn(gleðin mikil að "neyðast" svona til að nota smjer í einhverju formi).

Svona gerði ég fyllinguna:

100 gr. cashewhnetur
7 döðlur(bútaðar) sem hafa legið í bleyti í 20 min.
1 msk. bertolli smjör
60 ml léttmjólk
30 gr kakó
4 msk hlynsíróp
1 tsk vanilludropar
smá salt
2 msk kókosolía

..og fyllingin var ÆÐI! rosalega góð,ég sleikti alveg jafn vel upp úr skálinni eins og ef um "alvöru" köku væri að ræða.


Sjáið bara hvað hún er falleg:




..þessi elska fer með mér í saumó annað kvöld,en þar verður hollustuþema aldrei þessu vant. Engir heitir,feitir réttir og kók.

---

Um helgina ætla ég að reyna að endurskapa uppáhalds Cheesecake Factory réttinn minn;Spicy Cashew Chicken. Ef það lukkast vel þá hef ég lofað að bjóða vinkonum mínum í mat. Og þá skal ég líka henda uppskriftinni hingað inn. Engin hollusta þar!!

Ó hvað ég hlakka til að prófa!

---

Bæ í bili,

r e g í n a :)