Friday, December 30, 2011

Pa-teiii..

---

Við vinkonurnar ætlum að partýjast ásamt mökum hér hjá okkur Árna í kvöld. Ég er soldið mikið spennt.  Áramótapartý degi of snemma. 

I like it!

---


Smá Rick Astley kemur manni ætíð í gírinn.



TÖFFARI!!!

---

Eftir 10 daga gubbupest á okkur öllum fimm í fjölskyldunni,þá hlakka ég svo mikið til að fara úr jogging gallanum,sparsla yfir baugana,skella á mig varalit og skvísa mig upp svona eina kvöldstund eða svo.  

Skál fyrir því!

---

bæ í bili..


r e g í n a :)

Sunday, December 25, 2011

Okkar jól..

---

Á Aðfangadag stóð ég í eldhúsinu í 5 tíma nánast samfleytt. Ég settist ekki niður fyrr en matur var á borð borinn kl hálf 7. En öll vinnan var þess virði,og maturinn heppnaðist fullkomnlega þó ég segi sjálf frá. Á matseðli kvöldsins voru kalkúnabringur, maís frauð, sætkartöflu soufflé, sveppasósa,eplasalat, fylling og ofnbakaðar kartöflur.



Eftir matinn voru allir,gestir jafnt sem heimilisfólk, gersamlega afvelta,sem er auðvitað ekkert annað en rós í hnappagat kokksins,ekki satt? ;)





Kvöldið var yndislegt í alla staði,og snerist að venju mest um litlu jóla- og pakkasjúku strákana okkar. Þvílíkur æsingur og hamingja yfir hverjum einasta pakka. Love it! :)

---
















---

Gleðileg jól öll sömul! 

Takk fyrir að lesa og takk fyrir allar ellefu þúsund heimsóknirnar á nýja bloggið mitt. Það er ansi gott fyrir svona nóboddí eins og mig held ég barasta. :)


Jólakveðja,


r e g í n a :)

Wednesday, December 21, 2011

Jólamyndataka Kardashian fjölskyldunnar..

---

Ég er,eins og margir,mikill Kardashian aðdáandi. Mér gæti ekki verið meira sama þó að Kim sé nú tvískilin. Hún má gera það sem henni sýnist án þess að ég væli yfir því. Nema náttúrulega að hætta með þættina sína,ég yrði svolítið sár yfir því. Þó að sá dagur muni væntanlega renna upp í framtíðinni..en ég kýs að hugsa ekkert út í það núna.

---

Kardashian fjölskyldan skellti sér í jólakortmyndatöku,og svei mér þá,þetta er bara ALVEG eins og jólakortamyndatakan okkar.

--



 Kim er alveg eins máluð og ég m.a.s, bara svona náttúrulegt og afslappað:




..og Kris búin að stela jólakjólnum mínum ;) :




Hann Mason er svo mikill krúttkrakki að það hálfa væri nóg:




..og yngstu systurnar orðnar mega skvísur:



--

Ég elskidda!

---

Fleiri myndir HÉR !

Tuesday, December 20, 2011

The Forever Lazy

---


"The Forever Lazy" toppar Snuggie-ið auðveldlega! 

Með pissuklauf og allt,svo maður þurfi nú örugglega ekki að hafa of mikið fyrir því að fara á klósettið.

---


---

En Snuggie er samt með betri auglýsinguna. Þið sem þekkið mig viti að ég ég er mikil áhugamanneskja um Snuggie. Og ég geri mér iðulega glaðan dag með því að horfa á auglýsinguna nokkrum sinnum í röð.

---


---

Stemmning í þessu.

HEEEY get a snuggie!



r e g í n a :)

-stoltur Snuggie eigandi!

Bloglovin..

Þó ég sé mikill blogg lesari þá upppgötvaði ég snilldina Bloglovin bara í gær. Maður skráir sig inn og leitar svo að uppáhalds bbloggunum sínum í leitinni og ýtir á "follow". Í staðinn fyrir að flakka á milli síða daglega,þá fer maður bara inn á Bloglovin síðuna sína og þar eru komnir allar nýjar færslur af uppáhalds bloggunum. Love it! Þið getið fylgst með blogginu mínu með því að ýta hérna á Bloglovin myndina til vinstri og ýta á "follow".

Nokkur af mínum uppáhalds:

The Sartorialist

Stylizimo

The Pioneer Woman Cooks

Me Ra Ko Photograpy Blog

Design*Sponge

..og síðast en ekki síst:

Mín létt klikkaða BFF Eva Ruza :)

---

Ég keypti mér svo fallega bók á Amazon sem Árni kom með heim fyrir mig og ég er svo ánægð með hana að það hálfa væri nóg. Ég mæli sem sagt með Design Sponge At Home bókinni,hún er æðisleg!




---

En Árni er sem sagt kominn heim eins og hefur nú ekki farið framhjá neinum :) Það er yndislegt að vera búin að fá karlangann heim. Hann fékk þó ekkert rosalega blíðar móttökur frá Birkir Ísak sem ældi ca. 16 sinnum á 10 klukkutimum í gær. Aðra eins ælupest hef ég nú bara ekki séð á minni 28 ára og 4 mánaða ævi. 

Nú þurfum við bara að krossa putta,tær og allt sem hægt er að krossa og vonast til að aðrir í fjölskyldunni smitist ekki svona korter í jól. Við erum allt í allt 10 manns sem erum í mat hérna á Aðfangadagskvöld og ég vona að það verði ekkert æluvesen á heimilisfólki. Ég ætti nú ekki annað eftir.

---

En nú þarf að græja 6 ára gelgjuna á jólaball. Þá þarf að gela hár,fara í töffara föt og bara almennt skrúfa gæjaskapinn upp í hæstu hæðir. Ótrúlega fyndið hvað honum finnst hann flottur þegar hann er með gel í hárinu. 

---

Bæ í bili! :)


r e g í n a :)

Sunday, December 18, 2011

Á morgun..

..já á morgun,nánar tiltekið eftir ca.10 litlar klukkustundir kemur byggingarverkfræðingurinn Árni Kristinn heim. Og þar með lýkur 3 mánaða grasekkjulífinu. Amen.

Spennan á heimilinu er svo mikil að undirbúningur fyrir komu hans er svipuð og ef einhver konungborinn væri væntanlegur í heimsókn. Íbúðin er að verða extra glansandi fín,ég er búin að baka nokkrar plötur af lakkrístoppum ,súkkulaðibitakökum og eitt stykki skúffuköku, Svo er ég að spá í því að láta elskulegu brauðvélina mín baka fyrir mig brauð umdir morguninn.

Ég er svo enn að reyna að ákveða hvað hann fær í kvöldmatinn á morgun. Það kemur allt í ljós,en ef hann fær að ráða þá geri ég fastlega ráð fyrir því að hann biðji um nautakjöt. Það er orðið allt of langt síðan hann hefur fengið almennilega,heimatilbúna máltíð greyið.

Maður verður nú að dekra svolítið við þennan dugnaðarfork sem er búinn að vera aleinn í útlöndum án strákanna sinna og án sinnar alveg hreint mööögnuðu eiginkonu. Hann er búinn að vera undir þvílíku vinnuálagi,ca 200 % vinna í alltof langan tíma. Ég skil stundum ekki hvernig hann fer að. Ég væri allavega löngu brunnin út og væri ábyggilega eins og fílamaðurinn í framan eftir að hafa grenjað mig í svefn í 3 mánuði straight.

---

Hugsið ykkur að Árni hefur barasta ekkert átt heima hérna í Tröllanum með okkur. Hann náði tveimur nóttum hérna áður en hann fór aftur út til Seattle. Og þá var allt á hvolfi,nýmálað og allt bókstaflega útum allt. Ég hlakka til að deila nýja heimilinu okkar loksins með honum. Þetta er bara nánast eins og maður sé að byrja að búa í fyrsta sinn.. ;)

---

Brot af huggulegheitunum sem bíða bóndans:





---

..og við fjögur bíðum hans líka  :)


---

Bæ í bili,

r e g í n a :)

Wednesday, December 14, 2011

Vinkonustund gefur gull í mund!

Ég er svo óendanlega rík af góðum vinkonum. Og yndislegum vinkonubörnum! Ég átti rosalega góðan dag með góðum vinkonum og tveimur litlum,skemmtilegum,fallegum vinum mínum. :)

Emil Þór og Rut eru alveg jafn gömul,fædd sama dag og ótrúlega mikil krútt.

---


















---

..og svo á ég von á enn fleiri vinkonum til mín í kvöld!

Aldeilis ljúfur dagur það! :)

Friday, December 9, 2011

Jóla..hvað?

Hér gleymist alveg að telja niður í Stekkjastaur..of mikill spenningur að telja niður í pabbann. 

Bara 10 dagar,amen og hallelúja! :D

---






---

..og mér finnst SVO stutt síðan ég tók þessa mynd,og það voru 92 dagar í það að hann kæmi heim!


---

Aaaah hvað ég hlakka til !

:) :) :)

Wednesday, December 7, 2011

Stelpukvöld..

Það er fátt sem endurnærir þreytta húsmóður jafn vel og gott kvöld með yndislegum,skemmtilegum,fallegum og góðum vinkonum.

---













---

: )