Friday, May 11, 2012

Portobelllo borgari...


---

Í gær grillaði ég Portobello sveppi og gerði borgara. Algert nammi! Og mun léttara í magann en venjulegur kjöt-hamborgari. 

Ég ofnsteikti svo kartöflur og gerði pestó majones,bæði til að dýfa kartöflunum í og líka til að nota sem sósu á borgarana.



Grillaður Portobello borgari:

-undirbúningur-

2 dl ólívuolía
5 msk balsamik edik
3 msk worchester sósa
salt
svartur pipar

Hrærið saman og hellið í ílangt mót. 
Marinerið sveppina í allavega 10 min á hvorri hlið.
Ekki hella afgangs marineringunni. Þið þurfið hana til að pensla á sveppina þegar þið grillið þá.

Á meðan sveppirnir marinerast,skerið þá niður:

-tómata
-rauðlauk
-kál eftir smekk. 
(Ég notaði spínat og þurfti ekkert að skera..bara skola vel.)

Pestó majones:

3 msk majones
2 msk 10%sýrður rjómi
2 msk rautt pestó

---

-matreiðsla-

Grillið sveppina í ca.12 min á miðlungs hita. 
Snúið á 3 mín fresti og penslið með marneringunni.

Setjið ost á sveppina þegar þeir eiga ca.2 mínútur eftir.


(Ég grillaði í grillbakka,og myndi mæla með því.)

Takið sveppina af grillinu og setjið brauðið á.
Grillið í smá stund á hvorri hlið.

Setjið sósu og grænmeti á borgarann,snæðið og njótið!

---

Kartöflur:

(Ég notaði "fingerling" kartöflur,en það er líka gott að nota bökunarkartöflur.)

Skerið kartöflurnar í langa bita.
Sjóðið í söltu vatni í ca. 10-15 mínútur.
Hellið öllu vatni af og setjið kartöflurnar í eldfast mót.
Hellið olíu yfir(ekki of mikla olíu) og kryddið eftir smekk. 
Ég notaði salt,pipar og hvítlauksduft. 

Setjið í 200 gráðu heitan ofn og bakið í 15 mínútur á jöfnum hita.
Hækkið í 250 gráður og stillið ofninn á grill,og bakið í auka 5-10 mínútur,eftir smekk.

---






Wednesday, May 9, 2012

Mamma grautargerðarkona..

---

Það var opið hús í leikskólanum hjá Birki Ísak í dag. Þar var búið að hengja upp myndir sem hann teiknaði,ein af mér og önnur af Árna. Fyrir ofan myndirnar stóð "Hvað gerir mamma/pabbi?".

Og svörin hans Birkis míns voru vægast sagt skemmtileg. :)


Hvað gerir mamma?



"Hún blandar sokkum,fjólubláum. Hún gerir graut og býr til annan graut og annan og annan og annan. Hún púslar bíl. Hún setur sykur í og mjólk. Hún getur galdrað bangsa í burtu."


Hvað gerir pabbi?



Hann gerir ekkert,aldrei. Já..hann fer í vinnuna. Pabbi fer á æfingu og lúllar hjá mér á kvöldin."

---

Svo var annað spurningablað:


Hvað heitir þú:

Birkir Ísak Árnason

Hver er uppáhalds liturinn þinn?

Rauður,hann er rosa fallegur. Það er rautt ofan í jörðinni,eins og eldgos...eins og í risaeðlubókinni.

Hvað er uppáhalds bókin þín?

Bambi og Toy Story.

Hver er uppáhalds teiknimyndin þín?

Bangsímon,hann á hunang. Hann er með stóra bumbu því hann borðaði svo mikið.

Hver er besti vinur/vinkona þín?

Óttar Örn og Sigurást.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á leikskólanum?

Kubba,leika með dótið,lita. Ég leik með skóflu úti og set sand í fötuna.

Hver er uppáhalds maturinn þinn?

Grjónagrautur. Ég get borðað 6 skálar.

---



Yndislegt! 

:)