---
Það var opið hús í leikskólanum hjá Birki Ísak í dag. Þar var búið að hengja upp myndir sem hann teiknaði,ein af mér og önnur af Árna. Fyrir ofan myndirnar stóð "Hvað gerir mamma/pabbi?".
Og svörin hans Birkis míns voru vægast sagt skemmtileg. :)
Hvað gerir mamma?
"Hún blandar sokkum,fjólubláum. Hún gerir graut og býr til annan graut og annan og annan og annan. Hún púslar bíl. Hún setur sykur í og mjólk. Hún getur galdrað bangsa í burtu."
Hvað gerir pabbi?
Hann gerir ekkert,aldrei. Já..hann fer í vinnuna. Pabbi fer á æfingu og lúllar hjá mér á kvöldin."
---
Svo var annað spurningablað:
Hvað heitir þú:
Birkir Ísak Árnason
Hver er uppáhalds liturinn þinn?
Rauður,hann er rosa fallegur. Það er rautt ofan í jörðinni,eins og eldgos...eins og í risaeðlubókinni.
Hvað er uppáhalds bókin þín?
Bambi og Toy Story.
Hver er uppáhalds teiknimyndin þín?
Bangsímon,hann á hunang. Hann er með stóra bumbu því hann borðaði svo mikið.
Hver er besti vinur/vinkona þín?
Óttar Örn og Sigurást.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á leikskólanum?
Kubba,leika með dótið,lita. Ég leik með skóflu úti og set sand í fötuna.
Hver er uppáhalds maturinn þinn?
Grjónagrautur. Ég get borðað 6 skálar.
---
Yndislegt!
:)
Vá litli Snillingurinn.
ReplyDeletenei of sætt!! sniðugar svona spurningar!! pabbi gerir ekki neitt! haha sætastur!
ReplyDeletesysta
Þetta er nú bara alltof krúttlegt :)
ReplyDeletehahahahahaha, pabbi gerir ekki neitt....nema æsa upp og gera allt köreisí (á mínu heimili sko)
ReplyDeleteÓgeðslega krúttað hjá honum, rosa vanur og getur borðað 6 skálar...right;)