Sunday, January 29, 2012

Sunnudags..

---

..fyrst ég gat ekki bakað á þessum sunnudeginum,þá greip ég myndavélina í staðinn og myndaði yndislegu strákana mína aðeins. Skipta einu hobbíi út fyrir annað.

Sjáið bara hvað þessar elskur eru miklar elskur:


Róbert Elí:





Birkir Ísak:





Gunnar Bergvin:





Og allir saman nú:





Bestir!

---

Hvernig væri nú að skilja eftir eins og eitt komment? Kommentafjöldinn passar engan veginn við heimsókafjöldann á síðuna. :) Ég veit að sumir eiga í erfiðleikum með að kommenta,en í Chrome allavega á það að vera lítið mál. Auðveldast að fara bara í Anonymous og skrifa svo nafnið sitt undir.

bæ í bili,

r e g í n a :)

Saturday, January 28, 2012

Nei hvur djöfsi...


---

..mikið er það hræðilega óendanlega fáranlega ofboðslega leiðinlegt að taka matarræðið í gegn.

Ég er að reyna að hætta því að baka mér köku í hvert skipti sem mig langar í eitthvað sætt. Því það er jú eitt að baka köku,en það er annað að borða hana..alla..alein. Já ég hef gert það og já ofar en einu sinni. Jafnvel oftar en tvisvar. Og mikið vona ég að þið hugsið núna "æææ hvað hún er mikil dúlla!". En ég eiginlega alveg viss um að þið eruð að hugsa "oooooj,hver gerir svoleiðis??". Jú,undirrituð gerir nefnilega svolleiðis.

Nú er laugardagur. Venjulega eru laugardagar kökudagar hjá mér. En ekki í dag. Ég horfi á vinnukonuna mína,hana Kitchenaid, og reyni að hemja mig. Ég gæti verið búin að henda einni skúffuköku í ofninn eftir 10 mínútur. Ég gæti verið að sleikja deigið uppúr skálinni eftir 11 mínútur. Þ.e.a.s EF ég væri svo gráðug að ég gerði svoleiðis. En ég geri ekki svoleiðis. Nei nei.

Rækallans! Nú skal nýta allan styrk sem til er. Hann er ekki mikill,en einhver þó. Um leið og ég stend upp og voga mér eitt skref í áttina að eldhúsinu,þá slæ ég mig á höndina og píni sjálfa mig til að klípa í möffintoppið. Og þá man ég afhverju ég ætla ekki að baka. Aaaah blessað möffintoppið.


Sexei!!!

---

Nú rignir,alveg bullandi hiti úti,6 gráður í PLÚS seinast þegar ég gáði. Það þarf ekki meira til þess að koma mér í sumarfíling. Hugsið ykkur. Einn dagur þar sem landið er ekki á kafi í snjó,og ég er orðin hrædd um að möffintoppið verði ekki farið áður en bikiní sísonið hefst. Sem í huga mér er yfirvofandi. Ég er greinilega að smitast af ástkærri vinkonu minni Evu Ruzu sem má ekki sjá til sólar án þess að vippa sér í bikiníið og út í garð í sólbað. Alveg sama hvort það séu mínus 20 gráður úti eða plús 20 gráður.

---

Er einhver sem trúir því að ég muni ekki baka um helgina? Einhver?? Halló?

Djók. Ég trúi því ekki heldur. En held bara áfram að slá á höndina á mér. Bara 29 klukkutímar þar til helgin er formlega liðin. Það eru ekki nema 1740 mínútur.



---

aðíós mí amígós!


r e g í n a :)

Wednesday, January 25, 2012

Bæ snjór.

---

Jæja,hvað er að frétta??

Snjór,snjór,snjór,veik börn,veik börn,veik börn.  Það er það sem er að frétta.

Ahh ég get ekki beðið eftir því að þessi vetur hypji sig. Mig vantar sól,mig vantar sumar,mig vantar hita í kroppinn og mig vantar birtu!

---

Vorið má drífa sig takk! :)











---

Í dag, og seinustu daga, er ég búin að vera heima með uppáhalds litla næstum því 2 ára stráknum mínum í öllum heiminum.  Hann hangir á svalahurðinni og öskrar "Gunna út í dnóinn!(Gunnar út í snjóinn, fyrir ykkur sem talið ekki smábarnamál)". Og svo skilur hann ekkert í því að hann meigi ekki fara út að leika. Litli kúturinn. :)

Það er ekkert rosa leiðinlegt samt að hanga inni með þessum hressa og káta krúttkalli:









Bestur :)

---

..en nú þarf húsmóðirin að taka til hendinni. Ég ætla að baka spelt skonsur fyrir strákana mína áður en þeir kom heim úr skólunum og vinnunni. 
Spelt skonsur með hlynsírópi= nammi nmm og já takk!

---


Bæ í bili,

r e g í n a :)

Friday, January 20, 2012

Snjór snjór snjóóór..

---

Ég sótti Róbert Elí í skólann á tveimur jafnfljótum í snjókomunni í dag,og tók Stiga sleðann með.

Heimferðin var aðeins þægilegri fyrir litla dekurdýrið heldur en fyrir mömmu hans sem kom heim með maskara niður á höku,eldrauðar eplakinnar og púlsinn í botni. Samt er skólinn nánast í garðinum hjá okkur..

..það er sko greinilegt að hreyfingarátakið,sem gengur by the way vel, sé vel tímabært! :o)

---


"Hraðaaar!!"

---

Sunday, January 15, 2012

It´s on..

---

..í dag byrja ég í 30 daga hreyfingar átaki. Ég sem er yfirleitt ansi aktív og er vön því að hreyfa mig mjög reglulega,hef ekki æft að ráði seinustu mánuðina. Svona lék lífið sem einstæð móðir með mig grátt. Mamma þreytta átti aldrei neina orku fyrir eitthvað sprikl. Svo komu jólin. Og appelsínið. Ó,blessað appelsínið. 


---

Ég las í gær viðtal við Molly Sims í Shape. Þar segir :



“I wanted to be consistent with my exercise, so I committed to working out for 30 days in a row, no matter what,” she says. “For an hour every day, I did something. I was on the elliptical or the treadmill, and if someone asked me to go to a class—whether it was spinning, boxing, yoga, you name it—I went. By the end of the month, I felt so good, I just kept going. I didn’t want to lose my momentum.”




Og ég ætla að herma! Ég þarf svona hörku til að komast aftur í gang. Og nú er ég búin að opinbera þetta svo að ég verð að standa við það. Ég ætla að hreyfa mig eitthvað á hverjum degi. Líka sunnudögum. 


Hún Molly Sims er annars ekkert svo ljót. Og í ekkert rosalega slæmu formi:







---


Smá tip fyrir þær sem elska Shape Magazine eins og ég: 


Ég elska Shape Magazine, og keypti það alltaf úti í USA. Ég hef varla leyft mér það hérna heima,þar sem eitt blað kostar jafn mikið og árs áskrift úti! EN nú var ég svo sniðug að kaupa mér net áskrift á 18 dollara og get alltaf lesið blaðið í góðum gæðum í tölvunni og losna við blaðabunkann sem safnast saman og er alltaf svo mikið fyrir mér.


Loves it!


---


Bæ í bili!



r e g í n a :)





Saturday, January 14, 2012

Eva gamla og Palla tónleikar.

---

Eva Ruza,mín stór furðulega en alveg hreint dásamlega vinkona,átti afmæli í byrjun jan og varð þar með fyrst af okkur vinkonunum til að verða 29 ára. Ég er nú svo ofboðslega ung ennþá,bara nýorðin 28 ára og ætla að njóta næstu 8 mánaðanna áður en ég þarf að segjast vera 29 ára. Þetta er nú frekar ljót tala.

Eva bauð okkur vinkonunum í þroskað fullorðins matarboð til að fagna þessum tímamótum og tók á móti okkur með semalíusteina kórónu á höfði. Kórónan var ekkert grín,enda lætur Eva alltaf eins og að hún eigi stór afmæli. Sem er kannski bara ekkert svo vitlaust..

---







---


Við vinkonurnar skelltum okkur svo á Páls Óskars og Jóns Ólafs tónleika í Salnum í heimabyggð okkar; Kópavogi. Sannkallaðir fullorðins tónleikar, alveg magnað hvað við erum að þroskast. ;)

Ég átti samt örlítið gelgju móment eftir tónleikana þegar við Erla og Sjöfn rákumst óvænt á stórstjörnuna sjálfa,Pál Óskar, á leiðinni út í bíl. Þó að það séu komin 20 ár síðan ég veittist að hinni mögnuðu "hljómsveit" The Boys fyrir utan Kringluna,þá var þetta óþægilega svipuð tilfinning. Titringur í hnén,dúndrandi hjartsláttur og kaldur sviti á enni. 

Það er greinilega alveg hægt að verða starstruck á Íslandi..og m.a.s þó maður sé að vera þrítugur eftir korter. 


---












---


aðíós!


r e g í n a :)

Thursday, January 12, 2012

Fjölskyldan..

---

Þetta er fjölskyldan mín, séð með augum Birkis Ísaks sem er þriggja og hálfs:



Við fengum þessa mynd ásamt fleirum í jólagjöf frá honum. 
Hún er plöstuð og svo fín og falleg. 

Allar heimsins gersemar eiga ekkert í svona listaverk!

---

Listamaðurinn:


Wednesday, January 11, 2012

hlakkatiil!

---

Ég get ekki beðið eftir því að sleppa út af pestar heimilinu mínu í kvöld og fara með hvorki meira né minna en tíu góðum vinkonum út að borða og svo á fallega tónleika með Páli Óskari og Jóni Ólafs í Salnum í Kópavogi.




---

Það er ekkert sem gott vinkonukvöld (og Páll Óskar) getur ekki reddað.

:)