Tuesday, September 25, 2012

Fallegt.


---

Það er svo mikið auðveldara að vakna á svona dögum..


..aah..yndislega íslenska haustið upp á sitt besta.
:)

---


Sunday, September 23, 2012

Sunnudags.


---

Þessi sunnudagsmorgunn er búinn að vera svo notalegur.

Kaffi,heimabakað brauð og rólegheit. Sófakúr með þremur morgunmygluðum og mjög svo skemmtilegum strákum sem eru búnir að vera að krútta yfir sig í allan morgun. 

Svo er það bara að skella ipodinum í eyrun,reima á sig gönguskóna og fara út í morgungöngu.

Hljóma ég nokkuð sextug???

---


Þetta lag..ó þetta lag.

---

Að lokum vil ég benda ykkur á uppskriftina hennar Sollu "grænu" af besta brauði í heimi.
Þetta er svo fljótgert og brauðið er alltaf jafn mikill hittari.
Ef þið hafið ekki prófað þá mæli ég því að þið gerið það sem fyrst.

---

Hafra og speltbrauð
4 dl spelt- t.d. fínt malað
1 dl graskerjafræ
1 dl hörfræ
1 dl sólblómafræ
1 dl tröllahafrar eða haframjöl
1 msk vínsteinslyftiduft
1 1/2 tsk kúmen
1/2 tsk salt
2-3 msk hunang
2 1/2 dl soðið vatn
1 msk sítrónusafi

HÉR getið þið svo horft á myndskeið þar sem hún gerir brauðið. En þetta er beisiklí bara að henda öllu í skál,hræra með skeið,henda í form og inn í ofn í 25-30 mínútur.

---


Saturday, September 22, 2012

Broskall.

 ---

Ég : "Gunnar Bergvin,brostu fyrir mig."

Gunnar Bergvin:


Hann hlýtur að fá höfuðverk af þessu "brosi". :)

---