Wednesday, April 25, 2012

Birkir Ísak


---

Fyrir akkúrat 4 árum fæddist Birkir Ísak,litli gulllklumpurinn og hjartaknúsarinn okkar. Hann var vigtaður tvisvar sinnum eftir fæðingu,þar sem ljósurnar höfðu spáð 13 marka barni,en í heiminn mætti öskrandi 17.5 marka bolti. :) Hann er búinn að vera algert draumabarn síðan hann fæddist,aldrei vesen á honum og hann brosir frá morgni til kvölds.

Ég fæ fiðrildi í hjartað í hvert skipti sem ég horfi á hann... :)

---

NÝFÆDDUR:


EINS ÁRS:


TVEGGJA ÁRA:


ÞRIGGJA ÁRA:


FJÖGURRA ÁRA:


:)

---




Tuesday, April 24, 2012

Grilluð pizza.


---

Í gærkvöldi prófaði ég að grilla pizzu í fyrsta sinn á ævinni. Ég hef alltaf miklað þetta svo fyrir mér að ég hef ekki  lagt í það. Og eftir að hafa loksins prófað,þá get ég fullyrt að þetta er minna en ekkert mál! Og LANG bestu pizzur sem hafa verið gerðar á þessu heimili. Ekta eldbakaðar. Eldsmiðjan hvað ? ;)

Ég geri orðið alltaf spelt botninn hennar Ebbu,en það er lang einfaldasta uppskrift sem ég hef prófað. Svo finnst mér spelt svo mikið bragðbetra en venjulegt hveiti. Þessi botn hentaði mjög vel á grillið,enda er deigið svo meðfærilegt.

Botninn: (dugar mér í tvær stórar þunnbotna pizzur)

300 gr spelt
3 tsk vínsteinslyftiduft
3 msk olía
175 ml heitt vatn
1 tsk salt
2 tsk oregano (má sleppa)

-Blandið þurrefnunum saman í skál. Bætið olíu og vatni út í,hrærið með skeið og hnoðið svo saman í höndunum. Fletjið deigið svo út í þá þykkt sem þið kjósið. Voilá! :)

Til að grilla pizzuna:

Spreyjið teinana á grillinu vel áður en þið kveikið á því.
Setjið það á miðlungs hita,lokið því og leyfið að hitna vel.
Leggið deigið beint á teinana og fylgist vel með.
Þegar deigið er farið að "bubbla" vel,snúið því þá við og fylgist aftur vel með.
Setjið sósu og álegg á botninn,og lækkið í lægsta hita undir honum.
Lokið grillinu og leyfið ostinum að bráðna og álegginu að eldast.

ATH að fylgjast vel með pizzunni,og snúið pizzunni ef botninn er orðinn dekkri á einum stað en annars staðar.

Vessogú!



Ég mæli svo mikið með því að þið prófið! :)


---


Sunday, April 22, 2012

Gleðilegt sumar :)




---

Loksins gaf spúsi sér tíma til að setja saman monster-grillið sitt/okkar. Ég get ekki beðið eftir grilllyktinni í kvöld..mmm..hún er næstum því betri en grillmaturinn sjálfur.. 



Næst á dagskrá: Húsgögn á pallinn! 
-og þá erum við tilbúin í sumarið. :)

---

Annars er brjálað að gera eins og venjulega..meira nú en oftast svei mér þá. Tvær afmælisveislur um helgina og allt að gerast. Birkir minn er LOKSINS að verða 4 ára(eftir 3 daga), en það er búið að telja niður í þennan dag alltof lengi að mínu mati.

Það bætist sem sagt mikill bakstur við to-do listann..en þetta hefst allt saman! :)

---
Nokkrar nýlegar af símanum..

Útsýnið okkar á fallegum degi...


Fótboltasprikl niðrá velli..



Sæti tannlausi blikinn minn..


Sushi boð...


Við Róbert kósumst alltaf saman eftir hádegi á föstudögum..Yo yo ís er uppáhalds.


Yndislegur dagur með frábæru strákunum mínum.


Bestur! :)


Fallegt kvöld í Tröllakórnum.


Lítill krúttkarl að rölta um Heiðmörkina..


Komin heim, þreytt og lúin eftir FAM flug. Nú þarf fljótlega að fara að venjast því aftur að vakna fyrir morgunflug..

Pallurinn er mikið mikið miiikið notaður. 


Og ein af okkur Róberti tannlausa. Nú broosir hann alltaf þannig að það sjáist alveg örugglega að það vanti í hann framtönn.


---

Bæ í bili!

-nú ætla ég að halda áfram að njóta góða veðursins. Vikan er búin að vera svo yndisleg,alltaf sól og allir úti að leika. Svona á þetta að vera!

G L E Ð I L E G T    S U M A R ! 

:)

---

Wednesday, April 4, 2012


---

..ég finn lyktina af sumrinu. Ja.. allvega vorinu.  Íbúar í Tröllakórnum eru farnir að dusta rykið af grillunum sínum og og oftar en ekki er gilllykt í hverfinu á kvöldin. Svo er bjart svo lengi og börn úti að leika fram yfir kvöldmat..og milt í lofti. Svo ekta íslenskt og yndislegt. Nú man ég afhverju ég saknaði Íslands svona mikið. :)

Nú þurfum við að fara að henda risa grillinu okkar saman svo við getum lagt okkar af mörkum í vorstemmningunni. Við eigum sem sagt þetta fína ónotaða grill sem bara bíður þess að við setjum það saman.


..það verða ófá grillpartýin hér í sumar, I can feel it!

---

Aldís litla systir mín fermdist síðasta sunnudag. 
Ég bakaði stelpulegar möffins og rice crispies kransaköku:



Svo tók ég myndir í veislunni..

Fallega fermingarbarnið:


 ..og nokkrar af fjölskyldunni:








Frábær dagur! Til hamingju aftur Aldís mín :*

---