Tuesday, August 28, 2012

REÁ

Þessi litli/stóri,nýorðni 7 ára strákur sagði áður en hann fór að sofa í gær:  

"Mamma,þetta var besti dagur lífs míns og allir draumarnir mínir rættust". 

Yndislegt. :)


Hann varð sem sagt 7 ára í gær. Ótrúlegt! -en satt :)



Hér er afmælisbarnið með bræðrum sínum..Allir í stuði eins og vanalega!


---

Þessir stuðboltar gera mig svo hamingjusama að það hálfa væri nóg!

---

PS. ég setti inn afmælismyndir á myndasíðuna:
(sama password og alltaf)






Saturday, August 25, 2012

-

Nú þegar haustið er að ganga í garð,þá ætla ég að blása lífi í gamlar glæður og byrja að blogga aftur.

Nú eru strákarnir sumsé allir byrjaðir í skólanum aftur. Sem þýðir ekkert annað en það að nú á ég svolítinn tíma fyrir sjálfa mig aftur,eftir sumar sem einkenndist af því að hafa ofan af fyrir strákunum,vinnu og nú síðast veikindum. ( Hver fær eyrna- og kinnholusýkingar á sumrin?? ) Það hefur ekkert annað komist að,spyrjið bara vinkonur mínar. Þetta sumar er sannarlega búið að fljúga frá mér.

-En ég er ótrúlega spennt fyrir haustinu,það er margt & mikið skemmtilegt framundan. :-)


Þar til næst,
Regína :)

---

Nokkrar nýlegar af Instagram:

--


-róbert elí hljóp 3 km,alger snillingur-              --mamma & birkir lokkaprúði-


-29 ára afmælisblóm-                                      -fyrsti skóladagurinn í 2.bekk-


-kvöldstund með natöshu-                            -birkir ísak vatnsgreiddur-


-auður ósk og birta ísgerður á spjalli-

---

-ég elska instagram!-