Friday, November 25, 2011

Enn meira jóla..

Jólasnjórinn er mættur og ekki minnkar jólaandinn hjá mér við það. Um helgina skal baka eina-tvær sortir og jafnvel lagtertu líka. Það er nú fyrsti í aðventu á sunnudaginn og þá er orðið "löglegt" að skreyta og setja upp jóla seríurnar. Víííí.

---

Ég var svo óheppin að leggjast í ógeðis flensu,ljóta streptókokka sýkingu,hita og allan pakkann,en það hefur ekki náð að skyggja á jólaskapið. Ónei. En ég get sagt ykkur það að það er ekki gaman að vera svona mikið veikur en geta samt ekki annað en farið með börnin í skólann á morgnana,sótt þau seinnipartinn,fara í Bónus og þrífa heimilið. Ef Árni hefði verið heima hefði ég verið látin liggja í rúminu og fengið þjónustu. En oh well..nú er ég allavega hitalaus og er dugleg að bryðja verkjalyf. Þetta fer að verða búið.

---

Ég er búin að taka þá ákvörðun að vera með kalkúnabringur í matinn á aðfangadag. Og ég get ekki beðið eftir því að borða jólamatinn. Kalkúnn,fylling,sveppasósa,maísfrauð,sætkartöflu soufflé,ofnbakaðar kartöflur og rifberjasulta. Já takk. Frönsk súkkulaðikaka og heimtilbúinn Toblerona ís í eftirrétt. Ennþá meira já takk.


Thanksgiving kalkúnninn frá því í fyrra..

---

Eitt uppáhalds að lokum:




5 comments:

  1. ætla mér út í búð í dag og kaupa mér þennann disk!!

    systa

    ReplyDelete
  2. Já gerðu'ða Systa..Hann hr. Bublé vinur minn kemur með jólaskapið!

    ReplyDelete
  3. mmmm... Ef þér tekst að gera jafn góðan kalkún og í fyrra skal ég leyfa þér að sofa út í 3 mánuði!!

    ReplyDelete
  4. ég er svo ÁNÆGÐ hvað þú ert orðin miklu duglegri að blogga :)
    miklu betra að fá svona mörg oft og þá kannski aðeins styttri :)

    LUV IT

    - sandra (ókunnug)

    ReplyDelete
  5. Takk Sandra og takk fyrir kommentið! Litla blogghjartað mitt nærist á svona skemmtilegum kommentum.. :)

    ReplyDelete