---
Ég var svo óheppin að leggjast í ógeðis flensu,ljóta streptókokka sýkingu,hita og allan pakkann,en það hefur ekki náð að skyggja á jólaskapið. Ónei. En ég get sagt ykkur það að það er ekki gaman að vera svona mikið veikur en geta samt ekki annað en farið með börnin í skólann á morgnana,sótt þau seinnipartinn,fara í Bónus og þrífa heimilið. Ef Árni hefði verið heima hefði ég verið látin liggja í rúminu og fengið þjónustu. En oh well..nú er ég allavega hitalaus og er dugleg að bryðja verkjalyf. Þetta fer að verða búið.
---
Ég er búin að taka þá ákvörðun að vera með kalkúnabringur í matinn á aðfangadag. Og ég get ekki beðið eftir því að borða jólamatinn. Kalkúnn,fylling,sveppasósa,maísfrauð,sætkartöflu soufflé,ofnbakaðar kartöflur og rifberjasulta. Já takk. Frönsk súkkulaðikaka og heimtilbúinn Toblerona ís í eftirrétt. Ennþá meira já takk.
Thanksgiving kalkúnninn frá því í fyrra..
---
Eitt uppáhalds að lokum:

ætla mér út í búð í dag og kaupa mér þennann disk!!
ReplyDeletesysta
Já gerðu'ða Systa..Hann hr. Bublé vinur minn kemur með jólaskapið!
ReplyDeletemmmm... Ef þér tekst að gera jafn góðan kalkún og í fyrra skal ég leyfa þér að sofa út í 3 mánuði!!
ReplyDeleteég er svo ÁNÆGÐ hvað þú ert orðin miklu duglegri að blogga :)
ReplyDeletemiklu betra að fá svona mörg oft og þá kannski aðeins styttri :)
LUV IT
- sandra (ókunnug)
Takk Sandra og takk fyrir kommentið! Litla blogghjartað mitt nærist á svona skemmtilegum kommentum.. :)
ReplyDelete