Tuesday, November 15, 2011

Öfugsnúnir dagar...

Sólarhringurinn minn er í svo miklu rugli eftir Seattle skreppið mitt. 8 klukkustunda tímamismunur,8 klukkustunda flug..ja það gerir ekki mikið fyrir líkama sem var mjög svo þreyttur fyrir.

Ég sef sem sagt allan daginn,vaki alltof lengi og vinn öll helstu heimilisverkin seint á kvöldin. Þvæ þvott kl.11,skúra á miðnætti..

Ég hef ekki einu sinni orku í að reyna að snúa þessu við..

Eins gott að ég sé "bara" heimavinnandi þessa önnina.

EN..núna eru 34 dagar í Árna..þá grunar mig nú að ég verði ansi dekruð af karli og fái að sofa mikið og lengi út. Oft,oft,OFT.


---

Nú ætla ég sumsé að hundskast í ból..kl.10 að morgni.


-En ekki fyrr en ég er búin að sporðrenna síðustu sneiðinni af yndislegu döðlukökunni sem ég bakaði á sunnudaginn. Er ekki annars allt í lagi að borða milljón kaloríu köku í morgunmat? Með heimatilbúinni karamellusósu? Og ís?

Það finnst mér allavega ;)

Góða "nótt".

---



Birkir Ísak sparar ekki karamellusósuna með kökunni sinni (ekki frekar en gráðug kerlingin móðir hans)

---

3 comments:

  1. Hahaha þið eruð FÍN ! :)

    ReplyDelete
  2. Þegar ég kem heim þá verður það bara fjórði strákurinn til að sjá um og þjóna. Þannig að búðu þig undir það. Og mundu svo að vera búin að strauja skyrturnar mínar þegar ég kem heim.

    ReplyDelete
  3. Dream on Árni Kristinn Gunnarsson!

    ReplyDelete