Róbert Elí var að keppa nokkra æfingaleiki í dag. ÍR strákar komu í heimsókn í Kórinn og þetta var voða gaman. Minn maður,búinn að æfa í 2 mánuði núna á meðan flestir eru komnir með 1-2 ár,var ansi skondinn. :D Hann er meira fyrir það að tuða í dómaranum og sínum eigin liðsfélögum en að reyna eitthvað að skora. Hann er alltaf að passa upp á það að enginn sé að svindla og að markatalan sé pottþétt rétt. En það kom nú eitt mark frá honum! En honum fer mikið fram með hverri æfingunni og það er bara yndislegt að fylgjast með þessum flotta strák. Ég get ekki beðið eftir því að Árni komi heim og geti tekið þátt í þessu með okkur :)
---
Ég tók fullt af myndum..aðallega af Róberti og Emil..sem er orðinn ansi klár og er rosalega duglegur. Þeir eru bara flottastir,það er alltaf þannig. :) Við Sjöfn vorum náttúrulega bara í krúttkasti á hliðarlínunni...strákarnir okkar orðnir svo STÓRIR!
---
Það hefur margt breyst og þeir stækkað svo mikið síðan þeir hittust í fyrsta skipti fyrir 6 árum síðan:
:)
æðislegar myndir! þeir eru sko flottastir þessir drengir.. Svo stutt síðan þeir voru babies en samt svo langt.. :)
ReplyDeleteójesús hvað þeir voru einu sinni litlir og eru alltí einu stórir
ReplyDeleteæðislegar myndir! og þeir duglegir og sætir og bestir! ég trúi ekki að þeir hafi einhvern tímann verið svona litlir!! eða einhvern tímann svona MISstórir!!!
ReplyDeletesysta