Ég varð eiginlega pínu abbó þegar Róbert og Emil fóru út í snjóinn á Stiga sleðanum hans Emils. Ég tróð mér með í smá stund og tók af þeim myndir. Ég bað svo voða fallega um að fá að prófa eina ferð en þá varð Emil nú bara vandræðalegur á svipinn og sagði mér að hann væri bara búinn að eiga sleðann síðan um seinustu jól,svo hann var ekki alveg til í að hann brotnaði strax. Ekkert verið að skafa ofan af því..
---
---
Hvar fást annars ódýrustu Stiga sleðarnir? Eða er kannski ekkert til sem heitir "ódýr Stiga sleði"? :)
---
Að lokum langar mig að þakka allar kveðjurnar og hlýju hugsanirnar sem þið hafið senta Vigfúsi Blæ og okkur fjölskyldunni. Hann hefur það þokkalegt eftir atvikum,held honum leiðist aðallega að þurfa að vera á spítalanum. :) Batinn kemur með kalda vatninu... :)
---
Knús í bili!
r e g í n a :)
Flottar myndirnar chicka, alltaf að æfa sig sé ég. ;) Aaaa snjórinn, sakna hans. En Úff ekki gott að heyra um bróðir þinn vonandi fer allt á besta veg. xxx
ReplyDeleteæðislegir vinirnir! :)
ReplyDeletekv. Ásgerður
Við vorum að kaupa voða finan stiga sleða í europris á tæpar 13 þús :-)
ReplyDeleteTakk Telma,ég skundaði í Europris og verslaði eitt stykki Stiga sleða. :)
ReplyDeleteAlveg geggjaðar myndir Regína.
ReplyDeleteKveðja Beta
æji sjá þessa stóru stráka... yndis!!
ReplyDeleteBróðir þinn er flottastur!! :)
kv
Íris Erla