Þetta skemmtilega sem ég var að fara að gera fyrir viku,var að fljúga 8 tíma til Seattle og mæta surprise í skólann til Árna,sem grunaði ekki baun í bala.
Þegar Árni sá mig varð hann eins og hann hefði séð draug. Já DRAUG segi ég! Svo fékk hann smástelpu gelgju hláturskast og á endanum varð hann að setjast niður til að jafn sig,ná andanum og átta sig á því að ég væri í alvörunni þarna inni á skrifstofu hjá honum. :)
Ég var svo hjá honum í 5 daga,og það var svo yndislegt og skemmtilegt og frábært og allt! Ég er svo asskoti vel gift að það er fátt sem toppar quality tíma með manninum mínum. :)
Seattle var í spari búningnum,æðislegt haust veður og allt svo fallegt og ég fékk rosa mikið Seattle sakn í hjartað.
Svona fyrir utan það að versla,þá fórum við t.d á stand up hjá snillingnum Kathy Griffin sem eyddi tveimur tímum í það að rakka niður fræga fólkið,þó aðallega Kardashian systurnar..og mömmuna auðvitað líka.
Svo lék hún Khlóe alltaf eins og hún væri alger flóðhestur miðað við systur sínar og sagðist alveg viss um að Kim væri bara að skilja núna því að mamma hennar væri akkúrat að gefa út bókina sína í sömu viku OG raunveruleikaþáttur yngri systranna var akkúrat að fara í loftið í sömu vikunni..hmmm...
---
Við fórum líka á leik hjá háskólaliðinu í ameríska fótboltanum. Þar voru mættar "nokkrar" hræður..eða 70 þúsund manns danke schön. Þvílík upplifun og ótrúlega gaman þó að Washington Huskies hafi tapað leiknum og ég hafi ekki fundið fyrir löppunum á mér fyrir kulda í hálftíma á eftir.
En ég verð nú að viðurkenna að það fór mikill tími í það að versla. Núna eru jólagjafirnar alveg klárar..aaaah. Góð tilfinning. Svo þurfti ég að bæta á birgðirnar af ýmsum amerískum "nauðsynjum". Eins og t.d:
Nestlé Toll House kökudeig. Uppáhalds: chocolate chip lover. Mmmmm...
ELF varagloss. Bestu gloss í heimi! 3 í pakka á 5 dollara í Target. Ég á ansi laglegan lager af þessu..
Victoria´s Secret body spray og body lotion(get ekki notað ilmvötn)..uppáhalds: Heavenly og Tease:
Ný snilldar uppgötvun í VS:
Ilmkerti og sápur frá Bath and bodyworks:
(pineapple mango er uppáhalds kertið mitt)
Gerðum okkur sérferð í Costco bara til að kaupa okkur Macademia Clusters-salted caramel..mmmm!
Jólanáttfötin eru líka komin í hús..Target eins og vanalega fyrir okkur hjónin..
..og Carter´s á strákana:
Svo báðu jólasveinarnir mig um að gera sér greiða og versla í skóinn fyrir þá..ég reddaði því að sjálfsögðu,enda þæg stelpa. :)
---
Yndisleg ferð og alltof erfitt að kveðja. En nú heldur niðurtalningin bara áfram..40 dagar í Árna og venjulegt fjölskyldulíf. Ég get ekki beðið!!
:)








Ekkert smá fallegar myndir hjá þér :)
ReplyDeleteÉg held að maður verði að prufa að fara í verslunar og skoðunar ferð til Seattle.
Næs! Ég get ímyndað mér að það sé léttir að vera búin að versla julegaverne.. :) Var ekki soldið skrítið að vera bara tvö þarna.. og í svona marga daga í röð. Oh ég hefði átt að fá þig til að kippa svona tease með fyrir mig... Svo ég geti hætt að þefa af sjöfn eins og sækó þegar ég sé hana. :)
ReplyDeleteLike a þetta blogg:))
ReplyDeleteÚff hvað ég öfunda þig af þessu Ameríkudæmi!!! Þetta hefur bara verið geðveikt, svo slefa ég bara yfir kökunum :Þ
ReplyDeletekv Heiða 2010 bumba
Vá hvað þetta hefur verið dásamleg ferð !! Og hrikalega hlýtur að vera gott að vera búin með allar jólagjafir! Vildi að ég myndi finna tíma til að hoppa út og klára þær :) stupid skóli alltaf að skemma allt! Og með tease þá á ég þannig og elska það mikið að ég væri til í að baða mig í því.
ReplyDeleteÞurfum að taka kaffi soon! :)
hahaha jess BIG LIKE Á ÞETTA BLOGG MAÐUR!!
ReplyDeleteMig langar líka í .com síðu
Vá draumaferð, geðveikt hjá þér að fara surprise!!! Þið eruð nú meiri dúllurnar :)
ReplyDeleteKveðja, Helga Magga
Takk fyrir komuna ástin mín, ógeðslega gott að fá þig :)
ReplyDelete