Friday, November 11, 2011

Steve Jones..



..er gersamlega að skemma fyrir mér X- Factor USA gleðina. Hann er svo stressaður á tímanum alltaf hreint að ég er ómeðvitað farin að öskra á Paulu þegar hún byrjar að tala "koma svo Paula,wrap it up..við erum að falla á tíma kona!!!!" Allt Steve að kenna.

Svo sá ég einhverstaðar að hann hafi verið valinn einn af kynþokkafyllstu mönnum í heimi. Ég var ekki einu sinni búinn að taka eftir því að hann væri eitthvað sætur. Hann er svo asskoti leiðinlegur að ég bara fattaði það ekki.

Ég er greinilega ekki sú eina sem finnst maðurinn leiðinlegur. Það er strax farið að tala um það að það eigi að reka hann. Og að Cat Deely sé líkleg til að taka við..og jafnvel Khloe Kardashian..ég væri nú alveg til í að sjá það!




En eins og við í skemmtanabransanum vitum,þá skal ekki trúa öllu sem maður les..

en oh boy,ég vona að hann girði sig í brók blessaður..ég get ekki verið á skeiðklukkunni allan tímann á meðan ég horfi..

---

Kv. Regína sem eeeelskar annars X-factor.
(og Simon Cowell,en það er önnur saga...)

6 comments:

  1. Ég ELSKA Simon og hef gert alla tíð. Hann er með þetta helv. pungurinn !
    KAMNI

    ReplyDelete
  2. Við Gulli erum einmitt að BILAST á þessum gæja !! Hann gerir mann sjúklega stressaðan !!! Hann er bara geðveikt ekki með þetta.PUNKTUR.

    ReplyDelete
  3. Já Katrín,Simon er svo ógeslega mikið með þetta að það er bara grín. Skil ekki hvað það er við þennan miðaldra karl í stuttermabolnum sínum..

    Og Hildur,ánægð með ykkur hjónin að vera sammála mér..Þessi gaur er bara eitthvað!

    ReplyDelete
  4. oh já elska þessa þætti og simon er ekki að skemma neitt:) og nichole er held ég það fallegasta sem ég hef séð! (Rut ekki tekin með):)

    Syssý

    ReplyDelete
  5. Ekki Cat Deely, ég geeeeeet hana ekki!

    ReplyDelete
  6. Ó jesús, nennir hann bara að tjilla á klukkuhelvítinu!!!
    Ég væri til að í að sjá hina kjaftforu Khloé taka við kyndlinum. Hann pirrar mig geðveikt.
    Ég er skotin í Simon og finnst L.A. Reid sá svalasti í bransanum og Nicole er sú heitasta og Paula mesta krútt í heimi og ÉG ELSKA X TO THA FACTOR!!

    Ég ætti eijlega bara að vera kynnir.
    Svo þoli ég ekki þegar hann kemur á sviðið og gerir svona X með höndunum og bendir svo í allar áttir eins og rosa spaði!
    Get brjálast við það

    ReplyDelete