---
"Gamaldags" möffins.
Ekkert smjörkrem,ekkert skraut,ekkert fínerí.
Bara þessar gömlu góðu, a la mamma.
---
5 dl hveiti
250 gr. smjör
3 egg
4 dl sykur
1/2 tsk salt
1 tsk vanilludropar
100 gr rifið súkkulaði
1 dós kaffijógúrt
1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
---
Hrærið sykri og eggjum saman.
Bætið þurrefnum saman við.
Hrærið svo smjöri,jógúrt,vanilludropum og súkkulaði saman við.
Bakið í miðjum ofni á 170 gráðum í 10-15 min.
---
---
Þessum leiðist það ekkert sérstaklega þegar mamma hans bakar:
Verði ykkur að góðu!
:)
---

ég er bara búin að átta mig á því að svona cupcakes og allskyns fínerí er bara ekkert gott... en svona alvöru muffins standa sko fyrir sínu..
ReplyDeleteEinmitt málið Ásgerður ! ég get ekki hitt..það er gaman að baka þær og skreyta þær,en ekki hægt að borða meira en eina. En ég get gúffað þessum old school í mig eins og mér sé borgað fyrir það...sem er kannski ekkert svo sniðugt??
ReplyDeleteVá við samstíga ! Ég gerði reyndar bláberjamuffins, en muffins engu að síður og slóu rækilega í gegn hjá mínum líka ;)
ReplyDelete