Saturday, November 19, 2011

Jóla..

---

Jólin eru óðum að pota sér inn á heimilið hjá okkur. 




---

Nýji jóladiskurinn með Michael Buble er á stanslausu repeat hérna heima,og ég er aðeins farin að læða smá jólaskrauti inn hér og þar. Búin að baka eina sort og hún er að verða búin...já ég skammast mín smá fyrir að segja það. En okkur þykir fátt betra en volgar súkkulaðibitakökur með ískaldri mjólk,það er bara þannig..




Það er bara eitt sem vantar,og það er Árni. Í dag eru 30 dagar í hann,sem þýðir að á morgun get ég sagt að það séu tuttugu og eitthvað dagar þar til hann komi. Rúmar 4 vikur...loksins finnst mér tíminn farinn að líða hratt aftur!

Það væri samt fínt ef hann gæti skutlast heim í 1-2 daga til að hjálpa mér að setja kransinn á útihurðina og jólaljósin á pallinn og í gluggana.. En kona hlýtur að redda sér,er það ekki???

---
Bæ í bili..
..þessi hérna bíður eftir mér
(fyrsta tilraunin í perutertu bakstri)
:)


---

Bless í bili kæra fólk,og eigið gleðilegan "35 dagar til jóla" dag. :)

9 comments:

  1. ó my Regína,þú ert nú alltaf svo myndarleg, hvar finnurðu tímann fyrir þetta! Ég ætla sko að fara drífa mig í að reyna baka og gera konfekt, fæ alveg vatn í munninn við að sjá þessar fínu myndir. Oh og jólin mega bara fara koma sko! :)

    ReplyDelete
  2. skil ekki akkuru þú ert ekki feitabolla.þ

    Ég er að jólaþrífa og svo verður hengt draslið á morgun og bökuð lagkaka með double kremi á milli. Namminamm

    ReplyDelete
  3. "og svo verður hengt draslið á morgun". Hvað þýðir það Eva Ruza?? :D

    ReplyDelete
  4. það er með sanni hægt að segja að þú sért Domestic godess ;)

    ReplyDelete
  5. Hér er einmitt verið að þrífa kotið hátt og lágt, setja upp seríur og annað skraut ... allt að verða klárt fyrir jólin - en kannski aðallega tvíburana sem ætla að fæðast á næstunni.

    Ó.. og ég er líka búin að baka eina sort ...og hún er eiginlega líka að klárast (og ég sem ætlaði að láta hana vera fyrir gesti þegar börnin mín eru fædd ... ) ;)

    Kveðja,
    Jóhanna

    ReplyDelete
  6. Ah þú þarna, domestic godess for sure ! ;) SLEFA yfir þessum myndum ... og já þú ættir eiginlega að vera soldil feitabolla, haha -jafnast samt kannski smá út að haupa á eftir þremur strákrófum allan daginn :þ

    - hvernig er kremið á perutertunni ? Ég er sjúk !

    ReplyDelete
  7. Geymir þú smákökurnar fram að jólum?
    kv,
    Herdís

    ReplyDelete
  8. namm! pant læra að kera perutertu!


    sys

    ReplyDelete
  9. hengt draslið á morgun þýðir að jólaskrautið yrði hengt...veit ekki akkuru ég sagði þetta á sona ljotri íslensku. En skrautið er komið upp

    ReplyDelete