Black Friday var í gær eins og flestir vita,en þá er hátindi allrar útsölu klikkunar náð. Ég gerði rosa góð kaup,hamstraði einu buxurnar sem passa á mjóa spóalegginn minn hann Róbert Elí og svo sitthvað fleira í GAP og Old Navy. Ég skammast mín pínu yfir gleðinni sem heltekur mig þegar meldingin "your order is confirmed" birtist á skjánum hjá mér. Þetta er náttúrulega bara veiki. Ég ætla að vinna í þessu..fljótlega. Ekki fyrr en Árni er kominn heim samt. ;)
Ef það eru einhverjir sem eiga svona rosalega granna stráka eins og ég,sem þurfa að vera með hárband af mömmu sinni yfir mittið á joggingbuxunum sínum svo þær detti ekki niður um þá,,þá mæli ég hiklaust með :
Skinny Jeans frá GAP Kids. Þessi litur heitir MOD og er rosa flottur!
..og Five Pocket Pants,líka frá GAP Kids.
---
ATH! að í dag(laugardag) er ennþá Black Friday útsalan í gangi hjá GAP,plús auka 20 prósenta afsláttur við checkout.
Gunnar Bergvin fékk sér svo svona fína töffara úlpu,sem kostaði 60 dollara en er núna á afslætti á 42 dollara. Við checkout,með 20 % afslætti kostar hún ca.34 dollara.
Í gær bakaði ég lakkrístoppa og Lion Bar súkkulaðibitakökur. Ef einhvern langar að prófa nýja smákökuuppskrift þá eru Lion Bar kökurnar svo brjálæðislega góðar að þið verðið að prófa! PS. þær eru ekki beint "smá"kökur..þær verða svolítið stórar og flatar,en "chewy" útaf karamellunni í Lion Bar-inu. Nammmmmiii...
Kristín vinkona mín kynnti mig fyrir þessum kökum þegar við vorum báðar í fæðingarorlofi fyrir nokkrum árum,en þá gerði hún lítið annað en að baka og drekka appelsín. Stundum vildi ég að hún hefði aldrei sagt mér frá þessum kökum...því þær eru ekkert rosalega hitaeiningasnauðar.
Ef þessi yndis snillingur hefði ekki komið mér á bragðið,þá væri ég allavega 2-3 kílóum léttari...
---
Hér er uppskrift:
-Byrjið á að hræra vel saman:
1 egg
80 gr. smjör
150 gr. púðursykur
Bætið svo út í:
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
1-2 tsk vanilludropar
160 gr. hveiti
Að lokum,saxið niður:
2 stór Lion Bar
100 gr. suðusúkkulaði
..og hrærið varlega saman við deigið.
-Deigið er mótað í litlar kúlur og sett á bökunarpappír á ofnplötu.
-Bakið í ca. 8 min.
-ATH. að kökurnar fletjast mikið út svo að ekki er gott að hafa of lítið bil á milli þeirra.
Bon appetit elskurnar!
---
Kv. re g í n a :)




þetta skal ég prufa!
ReplyDeleteer hægt að versla black friday a netinu?
systa
Já það er svo sannarlega hægt Sigríður mín!
ReplyDeletemmmmmmmmmmm namm! eg verd ad profa thessar køkur! ;)
ReplyDeleteps. eg kannast vid thetta med ad versla a netinu.. eg gerdi thad aldrei, svo kynntist eg asos.com og thad er frir sendingarkostnadur hingad til DK og eg get alltaf sent tilbaka og fengid peninginn endurgreiddan thannig ad thetta er ordid OF audvelt! :/ haha .. madur verdur ad passa sig! ;)
Kristbjørg
Ohhh en sniðugt! Ekki hafði mér dottið það í hug, ég er svo ameríkuvitlaus - versla á netinu næst!! Og takk fyrir uppskriftina namminammmmmm.......
ReplyDeleteJólaundirbúningsogstuðkveðjur,
Ragga
Þessar kökur eru sjúúúkar! Ég ætla einmitt að fara að gera þær fljótlega. Er að reyna að hemja mig því að þegar ég baka þær þá borða ég alltaf alltof mikið af þeim sjálf.
ReplyDeletePant svo að fá mér hvítvín með þér fljótlega væna!
Ummm girnilegar kökur, verð að prófa :)
ReplyDeleteEn má ég spurja, bræðiru smjörið fyrst eða ??
Kv. Eyrún
Eyrún: smjörið á að vera lint :)
ReplyDelete..það á s.s ekki að bræða það :)
ReplyDeleteOkei hélt það líka en vildi vera alveg viss :) hahaha. TAKK fyrir hlakka til að prufa :)
ReplyDeletedjööö ætla ég að skella í þessar mother fucker kökur von bráðar!!
ReplyDelete