---
Þar sem ég rembist eins og rjúpan við staurinn þessa dagana við það að borða hollt,þá hef ég verið ansi hugmyndasnauð í eldhúsinu að undanförnu. Sérstaklega þegar kemur að bakstri. Ég lít venjulega ekki við bakkelsi ef það er ekki kíló af smjöri í því og annað eins af sykri. Sönn saga. -eða svona næstum því.
Uppáhalds sjónvarpskokkarnir mínir,og hreinlega bara mínar helstu matreiðslu fyrirmyndir,eru Nigella,Ina Garten og Paula Deen. Og það vita þeir sem til þekkja að þessar þrjár spara ekki smjörið!
---
EN,ég fór á netvapp í leit að köku sem ég gæti skellt í og borðað með góðri samvisku. Þar stóð Cafe Sigrún vefurinn upp úr sem endranær. Þar er af nógu að taka. Ég valdi ÞESSA uppskrift, hún leit út fyrir að geta glatt súkkulaði elskarann ,og svo átti ég allt í hana. Að ég hélt.
Ég gerði botninn alveg eftir bókinni. Svo þegar kom að því að gera fyllinguna þá komst ég að því að ég átti ekki banana. Ég notaði sem sagt eina msk. af Bertolli smjeri í staðinn(gleðin mikil að "neyðast" svona til að nota smjer í einhverju formi).
Svona gerði ég fyllinguna:
100 gr. cashewhnetur
7 döðlur(bútaðar) sem hafa legið í bleyti í 20 min.
1 msk. bertolli smjör
60 ml léttmjólk
30 gr kakó
4 msk hlynsíróp
1 tsk vanilludropar
smá salt
2 msk kókosolía
..og fyllingin var ÆÐI! rosalega góð,ég sleikti alveg jafn vel upp úr skálinni eins og ef um "alvöru" köku væri að ræða.
Sjáið bara hvað hún er falleg:
..þessi elska fer með mér í saumó annað kvöld,en þar verður hollustuþema aldrei þessu vant. Engir heitir,feitir réttir og kók.
---
Ó hvað ég hlakka til að prófa!
---
Bæ í bili,
r e g í n a :)
mmmmmmmmmmmmmmmmmm all the way!!!!!!
ReplyDeletesysta matgæðinur með meiru
Hljómar mjög vel :)
ReplyDeleteMamma þín ;)
Nei sko,þarna ertu mamma!! ;)
ReplyDeleteMana ykkur báðar til að prófa :)
Þú ert snillingur!
ReplyDeletefinnst rosa gaman að sjá hvað þú ert öflug að blogga og henda inn skemmtilegum myndum og setja inn nammigóðar uppskriftir :)
Keep up the good work :D
kv. Jóhanna, ókunnug :)
Mmm ég verð að prófa þessa! Takk fyrir að deila með þér uppskriftinni. :)
ReplyDeleteKveðja,
Jóhanna S. Jóhannsdóttir
Já, eða jafnvel deila með OKKUR uppskriftinni ... ;)
ReplyDeleteJSJ
Fuuuukk hvað ég hlakka til að smakka this shit á morgun.
ReplyDeleteEr að drepast úr sykurþörf
Ég fékk vatn í munninn við að lesa nafnið á þessum rétt sem þú ætlar að prófa að elda!! Þú verður að setja inn myndir og uppskrift :)
ReplyDeleteMjög girnó kaka líka!
kv. Sirra
Djö...eruð þið dugleg að kommenta!! Rex likes! :)
ReplyDeleteEn Sirra ég lofa myndum og uppskrift..vonum að þetta heppnist. :)
Mér finnst þú svo skemmtilegur bloggari :) og vá hvað strákarnir þínir eru heppnir að eiga þig, enginn smá kokkur og bakari hér á ferðinni.
ReplyDeleteer það ekki smá ögrun að gera eftirlíkingu af gömulu góðu ostakökunni á cheesecake Factory? ;) (bara þessi klassíska hvíta). Ég mana þig í það hlutverk og svo að pósta inn uppskriftinni ;-)
Kveðja, Ragnhildur.. sem að rakst fyrir tilviljun á bloggið þitt fyrir 8 árum!!!! og er búin að fylgjast með reglulega síðan
:)
Nú er ég er svöng!! Kveðja, Helga Magga
ReplyDeleteGreat and that i have a tremendous offer you: When To Renovate House house renovation for sale
ReplyDelete