---
Í eitt skiptið fórum við til Manhattan og vorum í nokkra daga. Þar smakkaði ég kaldra núðlur með hnetusmjörs bragði og átti ekki til orð. Nammi!
Ég er búin að vera að leita að góðri uppskrift af einhverju svipuðu,en ekki fundið neitt sem mér leist nógu vel á. Svo að ég prófaði mig bara áfram. Og svei mér þá. I did it.
Þessi réttur er ÆÐI,og rosalega einfaldur og snögglegur.
---
Núðlur:
Núðlur eftir smekk. Ég notaði heilhveiti núðlur.
2 stórar gulrætur
1/2 ferskur rauður chili pipar
Steinselja
---
Á meðan skerið þið gulrætur,chili og steinselju smátt niður.
Þegar núðlurnar eru soðnar látið þið vatnið renna af þeim og skolið þær undir köldu vatni,þar til þær hafa kólnað alveg. Látið allt auka vatn renna af.
Blandið skorna grænmetinu saman við núðlurnar og hrærið varlega saman.
SÓSAN:
3 msk púðursykur
1 msk. rauðvínsedik
4 msk kókosolía
4 msk soyasósa
1 msk sesamolía
1 tsk rifinn,ferskur engifer
hálf tsk. svartur pipar
Hálfur rauður chili,skorinn smátt
Öllu hrært vel saman. Athugið að sósan er mjög bragðsterk ein og sér.
---
Blandið sósunni saman við núðlurnar. Setjið eina msk. af henni í einu og hrærið núðlunum varlega saman við,þar til núðlurnar eru allar komnar saman við sósuna. Passið að drekkja þeim ekki í sósunni.
Stráið cashew hnetum,steinselju,gulrótum og grænum lauk yfir og voilá!
Núðlurnar eru líka æðislegar kaldar,daginn eftir. Frábært nesti í vinnuna eða skólann.
---
Prófið!
-þið eigið ekki eftir að sjá eftir því..
:)
---
Ekkert smá girnilegt! Ég mun klárlega prófa þetta fljótlega.. takk fyrir að deila þessu með okkur :) ég ELSKA uppskriftir og myndir af mat!! kv. Sirra
ReplyDeletemmm .. það er líka rosalega góð hnetusósa á matturmatarins.com sem gengur með öllu! og hún er laus við sykur og svona.. ;)
ReplyDeletePiff Ásgerður,laus við sykur hvað?? Það má nú leyfa sér stundum ;)
ReplyDeleteTakk Sirra,sammála þér,þða er svo gaman að skoða myndir af mat! :)
Namm !
ReplyDeletekamni
Ummmm girnó!! Verð að prufa :)
ReplyDeleteKv, Helga M