---
Það er sko svolítið öðruvísi að halda á 2 ára hlunki undir skírn,en að halda á sofandi ungabarni. Gunnar Bergvin var ekki alveg að fíla þetta,og þegar presturinn fór að skvetta á hann vatni vissi hann ekki hvert hann ætlaði,hann var svo illa móðgaður. En um leið og athöfnin var búin stökk hann í fangið á prestinum og talaði heillengi við hann. :)
Athöfnin var hér heima og svo vorum við með veislu fyrir okkar nánasta. Yndislegt. Og nóg að borða!
Er til flottara skírnarbarn?? :)
---
..og nóg var af kræsingum..
---
Ég á von á vinkonum í hádegismat á morgun.
Þessir afgangar éta sig ekki sjálfir. :)
---
Þetta barn er svo mikill gleðigjafi að það hálfa væri hellingur! :)
---


Til hamingju elska;) Hann er svo hrikalega sætur... Díses hvað kökurnar eru girnilegar! Mig langar í svona hvítan kökudisk eins og þú átt!
ReplyDeleteTakk dúllan mín. :) diskurinn er úr Target..en ekki hvað ;)
ReplyDeleteHahah èg sè að þú hefur àkveðip að halda þif við Gunnar Bergvin. Hefði verið skemmtilegt twist að breyta nafninu ì eitthvap annað,svona koma fólki à óvart.
ReplyDeleteEn èg.fìla Gunnar Bergvin og finnst nafnið passsa honum einstaklega vel.
Fjandinn að komast ekki i feitabolluboðið à morgun.
Elska þig alltaf