Sunday, February 19, 2012

Gunnar Bergvin.

---

Já loksins! Þá er búið að skíra litla barnið mitt,sem verður 2 ára eftir einn og hálfan mánuð. :)

Það er sko svolítið öðruvísi að halda á 2 ára hlunki undir skírn,en að halda á sofandi ungabarni. Gunnar Bergvin var ekki alveg að fíla þetta,og þegar presturinn fór að skvetta á hann vatni vissi hann ekki hvert hann ætlaði,hann var svo illa móðgaður. En um leið og athöfnin var búin stökk hann í fangið á prestinum og talaði heillengi við hann. :)

Athöfnin var hér heima og svo vorum við með veislu fyrir okkar nánasta. Yndislegt. Og nóg að borða!


Er til flottara skírnarbarn?? :)






---

..og nóg var af kræsingum..



---

Ég á von á vinkonum í hádegismat á morgun. 
Þessir afgangar éta sig ekki sjálfir. :)

---


Þetta barn er svo mikill gleðigjafi að það hálfa væri hellingur! :)

---

3 comments:

  1. Til hamingju elska;) Hann er svo hrikalega sætur... Díses hvað kökurnar eru girnilegar! Mig langar í svona hvítan kökudisk eins og þú átt!

    ReplyDelete
  2. Takk dúllan mín. :) diskurinn er úr Target..en ekki hvað ;)

    ReplyDelete
  3. Hahah èg sè að þú hefur àkveðip að halda þif við Gunnar Bergvin. Hefði verið skemmtilegt twist að breyta nafninu ì eitthvap annað,svona koma fólki à óvart.
    En èg.fìla Gunnar Bergvin og finnst nafnið passsa honum einstaklega vel.
    Fjandinn að komast ekki i feitabolluboðið à morgun.

    Elska þig alltaf

    ReplyDelete