Monday, February 6, 2012

Brownies

---

Ég er búin að vera veik alla helgina..og er enn. Óendanlega leiðinlegt.

En ég "lyfti mér örlítið upp" í gær og bakaði smá.


Amerískar brownies:




-Stillið ofn á 180 gráður

120 ml. olía
2 dl. sykur
2 egg
1 dl. hveiti
80 gr.kakó
1/2 tsk salt
1/2 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar

-Hrærið olíu og sykri vel saman
-Bætið eggjum og vanillu saman,hræris aðeins þar til allt er komið saman
-Blandið öllum þurrefnum saman í aðra skál
-Bætið þurrefnunum saman við eggjamixtúruna

-Spreyið lítið eldfast mót og hellið mixtúrunni útí.
-Bakið í ca 20 min,eða þar til hliðarnar eru farnar að losna frá
-Kælið alveg áður en þið skerið.

---

Ekta íslenskar pönnsur:



250 gr. hveiti
1/2 tsk lyftiduft
50 gr. sykur
1 tsk salt
2 egg
25 gr. smjör
250 ml. mjólk

-Þurrefnum er blandað saman
-Helming af mjólkinni er bætt út í
-Eggjunum hrært saman við
-Restinni af mjólkinni bætt út í

Ég sver það að ég held ég viti ekkert betra en íslenskar,volgar pönnukökur. 
Veeeel sykraðar  að sjálfsögðu;)

---


-þessi stók sko hraustlega til matar síns. Aldrei þessu vant.

4 comments:

  1. Skeeeeemmtilegt blogg Regína!!! Var að uppgötva það í gær og á eftir að verða tíður gestur héðan í frá, er meira að segja byrjuð í 30 daga hreyfingarátaki ;)
    Love it!!!
    p.s Hló upphátt af Snuggie færslunni, ætla að fá mér svona teppi, NICE!
    kveðja
    Arna Atla

    ReplyDelete
  2. Takk elsku Arna mín!!

    Snuggie er vinur í raun,get alveg staðfest það! ;)

    ReplyDelete
  3. Hæ Regína,
    Ég rakst inn á bloggið þitt þegar ég var að googla uppskriftir af brownies :) ... mér líst rosa vel á þessa uppskrift hjá þér en langaði samt að spyrja þig áður en ég byrja hvort það getur verið að það sé ekkert hveiti / mjöl í uppskriftinni? :) mjög skemmtilegt blogg hjá þér btw :)
    kv. Anna Sif

    ReplyDelete
    Replies
    1. Sæl Anna Sif, og takk fyrir kommentið :)

      Skarplega athugað,þarna vantar hveitið! Þarna á sem sagt að vera 1 dl. af hveiti. :)

      Bestu kv.
      Regína :)

      Delete