---
Mig langar svo í...
.. BLT pizzu á California Pizza Kitchen
..Mocha Frappuchino Light með kókos. Nammmi já takk.
.."smá" verslunarferð í Target.
..göngu/hlaupatúr í kringum Green Lake,Seattle.
..smá grams leiðangur í Ross.
..franskarnar á Piatti.
..Oreo McFlurry!
..amerískt bíópopp og kók.
..Mac and cheese balls á Cheesecake Factory.
..Amber Ale Chicken Sandwich á Ram Restaurant.
..og síðast,en ekki síst. Einn ískaldan Sam Adams.
---
Það fer væntanlega ekki framhjá neinum að ég er mjög svöng þegar ég skrifa þetta. Og í maga mínum býr feitur Ameríkani, og alltaf þegar ég verð mjög svöng þá langar mig bara í eitthvað rosalega feitt og yndislegt. Mmmmm. Feiti Ameríkaninn í maganum á mér slefar yfir þessari færslu.
En skynsami Íslendingurinn í mér sem þykist ráða einhverju ætlar að fá sér eggjahræru með fullt fullt af grænmeti.
Það bara hljómar engan veginn jafn vel og djúpsteikt Mac&cheese..
..engan veginn.
---
Ég er ekki oft pirruð. En ef ég er pirruð þá vitið þið að ég er svöng. Svo að þá er ráð að gefa dýrinu að borða. Og ekki bjóða mér epli þegar ég er svöng. Nema náttúrulega þið viljið kynnast mjög leiðinlegri og frekar mikið ljótri hlið á mér.
Þetta er svolítið mikið ég:
---
..en jæja..eggjahræra reddí!
-regína farin!
bæjó :)










mmmm frappppi! namm
ReplyDeletekv
Íris Erla
Það er sko feitur Ameríkani í mínum maga! ELSKA Amerískan mat mmmmmm, kem örugglega 10kg þyngri frá NY í vor :p
ReplyDeleteMMMMM... Slef yfir mac&cheese stuffinu frá Cheesecake og SamAdams bjór! Shæze!
ReplyDeleteÞað býr því miður feitur laumu-kani innra með mér líka, og því þarf að hlaupa og hlaupa og hlaupa...
Regina min. Èg deili þessum àhuga með þer...ekki jafn mikið mataràstinni,heldur þa frekar Target àstinni sem eg gæfi annan handlegginn fyrir
ReplyDelete