Sunday, January 15, 2012

It´s on..

---

..í dag byrja ég í 30 daga hreyfingar átaki. Ég sem er yfirleitt ansi aktív og er vön því að hreyfa mig mjög reglulega,hef ekki æft að ráði seinustu mánuðina. Svona lék lífið sem einstæð móðir með mig grátt. Mamma þreytta átti aldrei neina orku fyrir eitthvað sprikl. Svo komu jólin. Og appelsínið. Ó,blessað appelsínið. 


---

Ég las í gær viðtal við Molly Sims í Shape. Þar segir :



“I wanted to be consistent with my exercise, so I committed to working out for 30 days in a row, no matter what,” she says. “For an hour every day, I did something. I was on the elliptical or the treadmill, and if someone asked me to go to a class—whether it was spinning, boxing, yoga, you name it—I went. By the end of the month, I felt so good, I just kept going. I didn’t want to lose my momentum.”




Og ég ætla að herma! Ég þarf svona hörku til að komast aftur í gang. Og nú er ég búin að opinbera þetta svo að ég verð að standa við það. Ég ætla að hreyfa mig eitthvað á hverjum degi. Líka sunnudögum. 


Hún Molly Sims er annars ekkert svo ljót. Og í ekkert rosalega slæmu formi:







---


Smá tip fyrir þær sem elska Shape Magazine eins og ég: 


Ég elska Shape Magazine, og keypti það alltaf úti í USA. Ég hef varla leyft mér það hérna heima,þar sem eitt blað kostar jafn mikið og árs áskrift úti! EN nú var ég svo sniðug að kaupa mér net áskrift á 18 dollara og get alltaf lesið blaðið í góðum gæðum í tölvunni og losna við blaðabunkann sem safnast saman og er alltaf svo mikið fyrir mér.


Loves it!


---


Bæ í bili!



r e g í n a :)





8 comments:

  1. góð hugmynd, kannski hermi ég bara ;) þarf það að vera samfelldur klukkutími :)

    ReplyDelete
  2. Nei það þarf ekki að vera klukkutími. Ég myndi stilla mig inn á allavega hálftíma,og allt umfram það er svo bara plús.

    Það er hægt að gera mjög góða hluti með því að æfa hnitmiðað í hálftíma.

    ReplyDelete
  3. Dugnaður er þetta í minni !!!! :-)


    Sunneva

    ReplyDelete
  4. en sniðugt!!
    flott hja þér, og góð hugmynd með net áskriftina! er ekkert mál að gera svoleiðis?

    kv.EMR

    ReplyDelete
  5. Nei ekkert mál Elísabet,gefur bara upp netfang og kortanúmegvog áskriftin tekur strax gildi. Mjög einfalt :)

    ReplyDelete
  6. Fáránlega sniðugt! Djöfull ætla ég að taka þig mér til fyrirmyndar....30 daga hreyfing here i come !!!!

    ReplyDelete
  7. Hver er þessi Molly Sims eiginlega??? Fyrst sé eg einhverja frétt um að hún verði mamma í sumar og svo þetta?

    En ánægð með þetta kona áfram með þig!

    ReplyDelete
  8. Ok, hef ekki kommentað hér.
    Rosa flott, vel gert
    BLess

    ReplyDelete