Wednesday, January 25, 2012

Bæ snjór.

---

Jæja,hvað er að frétta??

Snjór,snjór,snjór,veik börn,veik börn,veik börn.  Það er það sem er að frétta.

Ahh ég get ekki beðið eftir því að þessi vetur hypji sig. Mig vantar sól,mig vantar sumar,mig vantar hita í kroppinn og mig vantar birtu!

---

Vorið má drífa sig takk! :)











---

Í dag, og seinustu daga, er ég búin að vera heima með uppáhalds litla næstum því 2 ára stráknum mínum í öllum heiminum.  Hann hangir á svalahurðinni og öskrar "Gunna út í dnóinn!(Gunnar út í snjóinn, fyrir ykkur sem talið ekki smábarnamál)". Og svo skilur hann ekkert í því að hann meigi ekki fara út að leika. Litli kúturinn. :)

Það er ekkert rosa leiðinlegt samt að hanga inni með þessum hressa og káta krúttkalli:









Bestur :)

---

..en nú þarf húsmóðirin að taka til hendinni. Ég ætla að baka spelt skonsur fyrir strákana mína áður en þeir kom heim úr skólunum og vinnunni. 
Spelt skonsur með hlynsírópi= nammi nmm og já takk!

---


Bæ í bili,

r e g í n a :)

3 comments:

  1. Fallegar myndir og enn fallegri strákur. Ertu starfandi ljósmyndari?

    Ása

    ReplyDelete
  2. Takk fyrir kommentið Ása. :)

    Nei ég er bara hobbíljósmyndari eins og er,en vonandi get ég sagst vera starfandi ljósmyndari einn daginn.. :)

    ReplyDelete
  3. Verð að viðurkenna að þetta blogg las ég í símanum mínum þegar ég var stopp á rauðu ljósi.
    ER siðmenntaður bílstjóri og kommentaði ekki, því græna ljósið kom.

    Fallegar myndir sem ylja mér um hjarta

    ReplyDelete