Saturday, January 28, 2012

Nei hvur djöfsi...


---

..mikið er það hræðilega óendanlega fáranlega ofboðslega leiðinlegt að taka matarræðið í gegn.

Ég er að reyna að hætta því að baka mér köku í hvert skipti sem mig langar í eitthvað sætt. Því það er jú eitt að baka köku,en það er annað að borða hana..alla..alein. Já ég hef gert það og já ofar en einu sinni. Jafnvel oftar en tvisvar. Og mikið vona ég að þið hugsið núna "æææ hvað hún er mikil dúlla!". En ég eiginlega alveg viss um að þið eruð að hugsa "oooooj,hver gerir svoleiðis??". Jú,undirrituð gerir nefnilega svolleiðis.

Nú er laugardagur. Venjulega eru laugardagar kökudagar hjá mér. En ekki í dag. Ég horfi á vinnukonuna mína,hana Kitchenaid, og reyni að hemja mig. Ég gæti verið búin að henda einni skúffuköku í ofninn eftir 10 mínútur. Ég gæti verið að sleikja deigið uppúr skálinni eftir 11 mínútur. Þ.e.a.s EF ég væri svo gráðug að ég gerði svoleiðis. En ég geri ekki svoleiðis. Nei nei.

Rækallans! Nú skal nýta allan styrk sem til er. Hann er ekki mikill,en einhver þó. Um leið og ég stend upp og voga mér eitt skref í áttina að eldhúsinu,þá slæ ég mig á höndina og píni sjálfa mig til að klípa í möffintoppið. Og þá man ég afhverju ég ætla ekki að baka. Aaaah blessað möffintoppið.


Sexei!!!

---

Nú rignir,alveg bullandi hiti úti,6 gráður í PLÚS seinast þegar ég gáði. Það þarf ekki meira til þess að koma mér í sumarfíling. Hugsið ykkur. Einn dagur þar sem landið er ekki á kafi í snjó,og ég er orðin hrædd um að möffintoppið verði ekki farið áður en bikiní sísonið hefst. Sem í huga mér er yfirvofandi. Ég er greinilega að smitast af ástkærri vinkonu minni Evu Ruzu sem má ekki sjá til sólar án þess að vippa sér í bikiníið og út í garð í sólbað. Alveg sama hvort það séu mínus 20 gráður úti eða plús 20 gráður.

---

Er einhver sem trúir því að ég muni ekki baka um helgina? Einhver?? Halló?

Djók. Ég trúi því ekki heldur. En held bara áfram að slá á höndina á mér. Bara 29 klukkutímar þar til helgin er formlega liðin. Það eru ekki nema 1740 mínútur.



---

aðíós mí amígós!


r e g í n a :)

2 comments:

  1. hahahah þú ert snillingur Rex jæja verðum að hafa Búnta-hittings í næstu viku með ávöxtum !!!

    ReplyDelete
  2. BAHAHAHAH þetta er ógeðslega fyndið blogg.
    Gleymdir að láta það fylgja með, að ef það er kalt í sólbaðinu mínu, þá ligg ég bara með teppi.
    Heyrði í útvarpinu að það eru innan við 3 mánuðir þangað til sumardagurinn fyrsti er.
    Ég er farin að dusta rykið af sandölunum mínum sko.

    Ég var að gleypa hamborgara og franskar...heimatilbúið sko..aðeins hollara.

    Við munum standa uppi sem sigurvegarar Regína mín. Eftir því sem sól hækkar á lofti því oftar vinnum við þennan nammipúkaógeðisfjanda sem á heima í okkur.
    Don´t u Worry girl.

    one ást á þig

    Ruz

    ReplyDelete