---
Eva bauð okkur vinkonunum í þroskað fullorðins matarboð til að fagna þessum tímamótum og tók á móti okkur með semalíusteina kórónu á höfði. Kórónan var ekkert grín,enda lætur Eva alltaf eins og að hún eigi stór afmæli. Sem er kannski bara ekkert svo vitlaust..
---
---
Við vinkonurnar skelltum okkur svo á Páls Óskars og Jóns Ólafs tónleika í Salnum í heimabyggð okkar; Kópavogi. Sannkallaðir fullorðins tónleikar, alveg magnað hvað við erum að þroskast. ;)
Ég átti samt örlítið gelgju móment eftir tónleikana þegar við Erla og Sjöfn rákumst óvænt á stórstjörnuna sjálfa,Pál Óskar, á leiðinni út í bíl. Þó að það séu komin 20 ár síðan ég veittist að hinni mögnuðu "hljómsveit" The Boys fyrir utan Kringluna,þá var þetta óþægilega svipuð tilfinning. Titringur í hnén,dúndrandi hjartsláttur og kaldur sviti á enni.
Það er greinilega alveg hægt að verða starstruck á Íslandi..og m.a.s þó maður sé að vera þrítugur eftir korter.
---
---
aðíós!
r e g í n a :)
hahahahahahaha stórskemmtilegt blogg og gaman að þú skildir skjóta því að að ég hefði átt afmæli.
ReplyDeleteÉG elska ykkur allar með tölu litlu krúttvinkonurnar mínar sem hagið ykkur alltaf eins og kjánar..nema ég
ótrúlega er ég að eeeeeeelska þessa "nýju" blogg-óðu Regínu :) :)
ReplyDeleteskemmtó mhyndablogg :D
Jakó