---
Í gær grillaði ég Portobello sveppi og gerði borgara. Algert nammi! Og mun léttara í magann en venjulegur kjöt-hamborgari.
Ég ofnsteikti svo kartöflur og gerði pestó majones,bæði til að dýfa kartöflunum í og líka til að nota sem sósu á borgarana.
Grillaður Portobello borgari:
-undirbúningur-
2 dl ólívuolía
5 msk balsamik edik
3 msk worchester sósa
salt
svartur pipar
Hrærið saman og hellið í ílangt mót.
Marinerið sveppina í allavega 10 min á hvorri hlið.
Ekki hella afgangs marineringunni. Þið þurfið hana til að pensla á sveppina þegar þið grillið þá.
Á meðan sveppirnir marinerast,skerið þá niður:
-tómata
-rauðlauk
-kál eftir smekk.
(Ég notaði spínat og þurfti ekkert að skera..bara skola vel.)
Pestó majones:
3 msk majones
2 msk 10%sýrður rjómi
2 msk rautt pestó
---
-matreiðsla-
Grillið sveppina í ca.12 min á miðlungs hita.
Snúið á 3 mín fresti og penslið með marneringunni.
Setjið ost á sveppina þegar þeir eiga ca.2 mínútur eftir.
(Ég grillaði í grillbakka,og myndi mæla með því.)
Takið sveppina af grillinu og setjið brauðið á.
Grillið í smá stund á hvorri hlið.
Setjið sósu og grænmeti á borgarann,snæðið og njótið!
---
Kartöflur:
(Ég notaði "fingerling" kartöflur,en það er líka gott að nota bökunarkartöflur.)
Skerið kartöflurnar í langa bita.
Sjóðið í söltu vatni í ca. 10-15 mínútur.
Hellið öllu vatni af og setjið kartöflurnar í eldfast mót.
Hellið olíu yfir(ekki of mikla olíu) og kryddið eftir smekk.
Ég notaði salt,pipar og hvítlauksduft.
Setjið í 200 gráðu heitan ofn og bakið í 15 mínútur á jöfnum hita.
Hækkið í 250 gráður og stillið ofninn á grill,og bakið í auka 5-10 mínútur,eftir smekk.
---

af hverju ERTU svona mikill snillingur ????
ReplyDeleteÞetta verður prófað á nýja grillinu, ekki spurning !! :)
Jóhanna (ókunnug)
snilld, ætla að prófa þetta, kv,Herdis
ReplyDeleteÆi Regína! Hvar ertu? mig langar að sjá nýtt blogg :) Anna
ReplyDelete