Núna er komin ágætis mynd á stofu og eldhús,en herbergin eru enn full af kössum og að koma þeim í ágætis horf er eitthvað sem ég dunda mér bara við á næstunni,enda Árni minn farinn til Seattle og kemur ekki heim fyrr en rétt fyrir jól.
Hann fór í gær og það var ekki það auðveldasta sem ég hef gert,að horfa á eftir honum á flugvellinum. :(
Nú er Róbert Elí líka orðinn svo stór að hann fattar það alveg hvað það er sorglegt að pabbi verði ekki hjá okkur í rosa langan tíma. Hann er voða leiður yfir því og þá verður þetta enn erfiðara.
En við erum víst ekki eina fólkið í heiminum sem gengur í gegnum svona tímabil,þetta á eftir að líða hratt með hjálp góðra vina og þéttskipaðri dagskrá. :)
---
En við héldum smá innflutningspartý á laugardaginn. Klukkutíma fyrir mætingu var stofan enn á rúst. En þetta hafðist og Árni tók á móti fyrstu gestunum í málningargallanum. En kvöldið var æði,ótrúlega gaman og ég endaði m.a.s kvöldið í tryllltum dansi í bænum með yndislegu og ógeðslega fyndnu vinkonum mínum.
Nokkrar myndir af frábæru kvöldi:


vá ekkert smá fínt og flott hjá þér :o) æðisleg húsgögn, þú verður eiginlega að gera alveg spes bloggfærslu með myndum og upplýsingum um húsögnin ;) er alveg að löva borðstofustólana!!!! sjúkir!
ReplyDeleteDuglega ofurmamma ;)
ReplyDeleteVá hvað þið voruð fljót að þessu, alveg mögnuð!! Rosalega flott hjá ykkur, sammála með borðstofustólana, geðveikir!!
Kv, Helga Magga
Mér finnst ég flottust af öllum á þessum myndum.
ReplyDeleteÞetta partý var geðveikt og flottar kökur sem Eva Ruza bakaði
Kveðja Eva Ruza
Jess þetta kvöld var æði!! Var búin að gleyma fræga fólkinu sem við hittum og tókum mynd af okkur með.. skil það ekki :)
ReplyDeleteJá Tinna,svo hittum við auðvitað Gunna líka..þú veist,as in "Gunni og Felix". Allt að gerast bara.
ReplyDeleteTakk fyrir kommentin ! Skal sýna fleiri myndir af húsgögnunum fljótlega. :)
ReplyDeleteþað hefur greinilega verið stuð á ykkur í bænum! :)
ReplyDeleteÚúú flottir borðstofustólar, ég á alveg eins :D
ReplyDeleteKv Halla Katrín
Dúndur stuð í bænum sé ég! ;) Þú átt ofurskemmtilegar vinkonur Regína!!
ReplyDeletekv,
Ragga
ég hlakka til þegar þú ert að tala um mig þegar þú segir þú talar um ógeðslega fyndnu vinkonur þínar:) en takk fyrir æðislegt partý! Rut skemmti sér konunglega:)
ReplyDeleteVá orðið glæsilegt hjá ykkur :)
ReplyDeleteHlakka til að sjá fleiri myndir af íbúðinni :) Og sérstaklega þessum fallegu borðstofustólum !!
Vil helst bara fá að sjá myndir af ALLRI íbúðinni þegar allt er tilbúið :) hehe
Kv. ein mega spennt ;)