Tuesday, September 20, 2011

Flutt!

Jæjæ,þá erum við flutt. Loksins! Þvílík vinna sem það er að flytja. Og þvílíkt sem við erum heppin með vini og fjölskyldu! Við hefðum aldrei náð að mála og flytja á þeim stutta tíma sem við höfðum,ef við værim ekki með svona mikið af yndislegu fólki í kringum okkur sem nennti alveg endalaust að hjálpa okkur.

Núna er komin ágætis mynd á stofu og eldhús,en herbergin eru enn full af kössum og að koma þeim í ágætis horf er eitthvað sem ég dunda mér bara við á næstunni,enda Árni minn farinn til Seattle og kemur ekki heim fyrr en rétt fyrir jól.



Hann fór í gær og það var ekki það auðveldasta sem ég hef gert,að horfa á eftir honum á flugvellinum. :(

Nú er Róbert Elí líka orðinn svo stór að hann fattar það alveg hvað það er sorglegt að pabbi verði ekki hjá okkur í rosa langan tíma. Hann er voða leiður yfir því og þá verður þetta enn erfiðara.



En við erum víst ekki eina fólkið í heiminum sem gengur í gegnum svona tímabil,þetta á eftir að líða hratt með hjálp góðra vina og þéttskipaðri dagskrá. :)

---

En við héldum smá innflutningspartý á laugardaginn. Klukkutíma fyrir mætingu var stofan enn á rúst. En þetta hafðist og Árni tók á móti fyrstu gestunum í málningargallanum. En kvöldið var æði,ótrúlega gaman og ég endaði m.a.s kvöldið í tryllltum dansi í bænum með yndislegu og ógeðslega fyndnu vinkonum mínum.

Nokkrar myndir af frábæru kvöldi:












































---

Takk fyrir skemmtilegt kvöld allir! :)

---


En nú þarf að sækja þrjá sæta litla stráka í skólana sína,koma einum á frjáls íþrótta æfingu og standa í ýmsu stússi. Rosalega er maður bissí svona "single". 

Bæ í bili,

Grasekkjan!



11 comments:

  1. vá ekkert smá fínt og flott hjá þér :o) æðisleg húsgögn, þú verður eiginlega að gera alveg spes bloggfærslu með myndum og upplýsingum um húsögnin ;) er alveg að löva borðstofustólana!!!! sjúkir!

    ReplyDelete
  2. Duglega ofurmamma ;)
    Vá hvað þið voruð fljót að þessu, alveg mögnuð!! Rosalega flott hjá ykkur, sammála með borðstofustólana, geðveikir!!

    Kv, Helga Magga

    ReplyDelete
  3. Mér finnst ég flottust af öllum á þessum myndum.
    Þetta partý var geðveikt og flottar kökur sem Eva Ruza bakaði


    Kveðja Eva Ruza

    ReplyDelete
  4. Jess þetta kvöld var æði!! Var búin að gleyma fræga fólkinu sem við hittum og tókum mynd af okkur með.. skil það ekki :)

    ReplyDelete
  5. Já Tinna,svo hittum við auðvitað Gunna líka..þú veist,as in "Gunni og Felix". Allt að gerast bara.

    ReplyDelete
  6. Takk fyrir kommentin ! Skal sýna fleiri myndir af húsgögnunum fljótlega. :)

    ReplyDelete
  7. það hefur greinilega verið stuð á ykkur í bænum! :)

    ReplyDelete
  8. Úúú flottir borðstofustólar, ég á alveg eins :D

    Kv Halla Katrín

    ReplyDelete
  9. Dúndur stuð í bænum sé ég! ;) Þú átt ofurskemmtilegar vinkonur Regína!!

    kv,
    Ragga

    ReplyDelete
  10. ég hlakka til þegar þú ert að tala um mig þegar þú segir þú talar um ógeðslega fyndnu vinkonur þínar:) en takk fyrir æðislegt partý! Rut skemmti sér konunglega:)

    ReplyDelete
  11. Vá orðið glæsilegt hjá ykkur :)
    Hlakka til að sjá fleiri myndir af íbúðinni :) Og sérstaklega þessum fallegu borðstofustólum !!

    Vil helst bara fá að sjá myndir af ALLRI íbúðinni þegar allt er tilbúið :) hehe

    Kv. ein mega spennt ;)

    ReplyDelete