---
Þessi sunnudagsmorgunn er búinn að vera svo notalegur.
Kaffi,heimabakað brauð og rólegheit. Sófakúr með þremur morgunmygluðum og mjög svo skemmtilegum strákum sem eru búnir að vera að krútta yfir sig í allan morgun.
Svo er það bara að skella ipodinum í eyrun,reima á sig gönguskóna og fara út í morgungöngu.
Hljóma ég nokkuð sextug???
---
Þetta lag..ó þetta lag.
---
Að lokum vil ég benda ykkur á uppskriftina hennar Sollu "grænu" af besta brauði í heimi.
Þetta er svo fljótgert og brauðið er alltaf jafn mikill hittari.
Ef þið hafið ekki prófað þá mæli ég því að þið gerið það sem fyrst.
---
Hafra og speltbrauð
4 dl spelt- t.d. fínt malað
1 dl graskerjafræ
1 dl hörfræ
1 dl sólblómafræ
1 dl tröllahafrar eða haframjöl
1 msk vínsteinslyftiduft
1 1/2 tsk kúmen
1/2 tsk salt
2-3 msk hunang
2 1/2 dl soðið vatn
1 msk sítrónusafi
HÉR getið þið svo horft á myndskeið þar sem hún gerir brauðið. En þetta er beisiklí bara að henda öllu í skál,hræra með skeið,henda í form og inn í ofn í 25-30 mínútur.
---
En ég fæ þetta blessaða brauð aldrei til að bakast!!! Hvað er þá að mér?!
ReplyDeleteKósý dagur! elska helgar og elska meira djammlausar helgar:) með öllu svona yndislegu!
ReplyDeletekv systa
Björg mín,ég get ekki ímyndað mér að það sé neitt að þér..er nokkuð eitthvað að ofninum þínum? :) Er brauðið enn hrátt eftir baksturinn? Skrýtið! ég hef aldrei lent í veseni með þetta...
ReplyDeleteSysta fullorðinslífið er æðis ;)