---
Loksins gaf spúsi sér tíma til að setja saman monster-grillið sitt/okkar. Ég get ekki beðið eftir grilllyktinni í kvöld..mmm..hún er næstum því betri en grillmaturinn sjálfur..
Næst á dagskrá: Húsgögn á pallinn!
-og þá erum við tilbúin í sumarið. :)
---
Annars er brjálað að gera eins og venjulega..meira nú en oftast svei mér þá. Tvær afmælisveislur um helgina og allt að gerast. Birkir minn er LOKSINS að verða 4 ára(eftir 3 daga), en það er búið að telja niður í þennan dag alltof lengi að mínu mati.
Það bætist sem sagt mikill bakstur við to-do listann..en þetta hefst allt saman! :)
---
Nokkrar nýlegar af símanum..
Útsýnið okkar á fallegum degi...
Fótboltasprikl niðrá velli..
Sæti tannlausi blikinn minn..
Sushi boð...
Við Róbert kósumst alltaf saman eftir hádegi á föstudögum..Yo yo ís er uppáhalds.
Yndislegur dagur með frábæru strákunum mínum.
Bestur! :)
Fallegt kvöld í Tröllakórnum.
Lítill krúttkarl að rölta um Heiðmörkina..
Komin heim, þreytt og lúin eftir FAM flug. Nú þarf fljótlega að fara að venjast því aftur að vakna fyrir morgunflug..
Pallurinn er mikið mikið miiikið notaður.
Og ein af okkur Róberti tannlausa. Nú broosir hann alltaf þannig að það sjáist alveg örugglega að það vanti í hann framtönn.
---
Bæ í bili!
-nú ætla ég að halda áfram að njóta góða veðursins. Vikan er búin að vera svo yndisleg,alltaf sól og allir úti að leika. Svona á þetta að vera!
G L E Ð I L E G T S U M A R !
:)
---
Gleðilegt yndislegt íslenskt sumar! :D x
ReplyDeleteOHHH Va sakna grillanna okkar :) mmmm
ReplyDeleteGledilegt sumar luv og jiii hvad tu ert saet a fluffu myndinni stort LIKE :) KNUS A ALLA STRAKANA MINA og ja gefdu ter eitt lika :)