Tuesday, March 20, 2012

Brjál að gera..

---

..já það er búið að vera brjál að gera seinustu vikurnar og ekki sér fyrir endann á því. Það er nú samt bara gaman,þá líður tíminn hraðar og sumarið kemur kannski loksins! :)

Nú er ég allavega búin með árlega flugfreyjunámskeiðið,það er alltaf gott þegar það er búið. Ég hlakka svo til að fara að fljúga aftur með öllu skemmtilega fólkinu.. :)

---

Það eru stórir dagar framundan,fullt af afmælum og svo fermist litla dýrið hún Aldís Björk 1 apríl. Hún sem er svona nýfædd...næstum því allavega.

Tengdamamma mín verður sextug eftir viku,mamma mín á afmæli nokkrum dögum eftir það,og svo eru það Gunnar Bergvin,Árni og Birkir Ísak sem eiga afmæli í apríl. Ég verð bara bakandi og pakkandi inn afmælisgjöfum eins og enginn verði morgundagurinn. Gaman samt. :)

---

Nú ætla ég að hendast út að hlaupa,þetta er allt að koma. Svo gott hvað maður er snöggur að ná hlaupaforminu upp aftur. Ég verð vonandi orðin eins og raketta áður en sumarið kemur ;)

Bæ í bili!

---

Nokkrar myndir með að vanda:

Gunnar Bergvin að frumsýna nýtt myndavélarbros:



Krútt að leika inni í herbergi:



Handboltahetjan á heimilinu:




Gunnar litli datt í leikskólanum og tennur fóri í gegnum húð. Fyrsta slysó heimsóknin.


Róbert Elí fékk loksins bekkjarbangsann Felix í helgar heimsókn:


Gunnar á baki:


Tjarnar leiðangur:



Þessi sko..bestur :) :


Krúttkast:


---

3 comments:

  1. óóóó tennur í gegnum húð.... En doldið falleg börn þarna sem þú átt :)

    ReplyDelete
  2. Rosa krúttlegar og skemmtilegar myndir :)

    P.S. Tennurnar fóru reyndar í gegnum alla vörina, ekki bara húðina!!

    ReplyDelete
  3. Litli krúlli sæti...við stökkvum 10 km á no tæm í sumar

    ReplyDelete