Monday, December 5, 2011

Sunnudags"steikin"..

Við strákarnir áttum gott kvöld saman í gærkvöldi,borðuðum góðan(rosa góðan) mat,við Róbert Elí drukkum jólaöl með og svo höfðum við það huggó áður en strákarnir fóru svo að sofa. Oh ég á svo gott að eiga svona góða stráka. :)


Ég gerði líka þennan kjúkling og sósuna fyrir vinkonur mína á föstudaginn og þær nutu vel get ég sagt ykkur. 


---

Fylltar kjúklingabringur:


---



FYLLING:



Látið malla á pönnu þar til mjúkt og farið að brúnast aðeins:

-Einn laukur,smátt saxaður
-Ca.hálf askja af smátt skornum sveppum
-2-3 hvítlauksrfit,smátt skorin eða rifin.

Bætið þá við:

-Einni vænni lúku af fersku spínati,söxuðu.

Öllu hrært saman og leyft að malla á pönnunni þar til þetta er komið fallega saman.

Leyfið blöndunni aðeins að kólna. Bæti henni svo saman við eina(litla) öskju af rjómaosti með svörtum pipar(rjómaosturinn mé vera hvernig sem er,eftir smekk). 
Kryddið eftir smekk.

BRINGUR:

-Lemjið bringurnar með kjöthamri(sléttu hliðinni,gott að hafa plastpoka á milli),þar til þær eru ca. 1 cm á þykkt. 
-Smyrjið rjómaostablöndunni á bringurnar,rúllið þeim upp og lokið hliðunum með tannstönglum.
-Steikið á heitri pönnu í ca 2 min á hvorri hlið,þar til þær hafa brúnast örlítið.
-Færið bringurnar yfir í eldfast form og í ofn á 180°.

Ég mæli EINDREGIÐ með kjöthitamæli. Það ættu allir að eiga einn svoleiðis. 

Stingið mælinum í þykkasta part einhverrar bringunnar. Þegar kjúklingurinn hefur náð 75 gráðum skuluð þið taka hann út og setja álpappír yfir formið og láta standa í ca. 10 min.

Mér finnst gott að skera bringurnar í sneiðar. En auðvitað er hægt að bera þær fram heilar.

---

MEÐLÆTI:

Frábær sætkartöfluréttur:



-Sneiðið sætar kartöflur í þunnar sneiðar,eða skerið í litla teninga(magn fer eftir fjölda). 
-Gerið það sama við venjulegar bökunarkartöflur(í minna magni en sætu kartöflurnar þó). 
-Skerið niður ferska sveppi. 
-Skerið niður heilan Mexíkó ost í litla bita. 
-Blandið þessu öllu saman og látið í eldfast mót. 
-Hellið rjóma yfir,þar til hann þekur nánast blönduna. 
-Setjið álpappír yfir formið og inn í ofn á 180°. 
-Eftir ca. hálftíma takið þið álpappírinn af og hækkið hitann í 200° í 10-15 min.

---

PIPAROSTASÓSA:



-Smjörsteikið sveppi í sósupotti.  
-Bætið rjóma út í. 
-Skerið piparost í litla bita og bæðið saman við. 
-Bragðbætið eftir smekk með kjúklingakrafti,salti og pipar. 
-Punkturinn yfir i-ið er svo væn teskeið af rifsberjahlaupi. 
-Sósan er tilbúin þegar osturinn og hlaupið hafa leystst alveg upp.

Ég var með grænt,plain salat með,en gott er að bæta ýmsu við:meira grænmeti,hnetum osfrv.

---


---

Þessi máltíð er ekki fyrir þá sem eru að reyna að passa línurnar. 
En hún er jafn góð og hún er rjómuð,ég lofa því. :)

---

Bæ í bili,

r e g í n a :)

9 comments:

  1. Girnó ég mun gera svona soon!

    ReplyDelete
  2. Ah þessi sósa er besta sósa HEIMS ! Helvítis fokk því einmitt hún er bæði ávanabindandi og ógeðslega feit ;) Gottalovid ! Ég gerði einmitt samskonar uppskrift, en blandaði saman sósunni og kjúklingnum ... steikti smá á pönnu kjúkling og smjörsteikti sveppi og smellti saman í eldfast mót, kjúlla og sósunni .. mjög mikið nammigott ;)

    ReplyDelete
  3. Hljómar vel Íris! Og gaman að sjá að ég er ekki sú eina sem notar sultur í sósur :) :)

    ReplyDelete
  4. nammi.... ætla að gera þetta næstu helgi :)

    ReplyDelete
  5. Ég slefaði......

    ... Big Time!

    Sandra (ókunnug)

    ReplyDelete
  6. Regína þú átt eftir að gera mig vel hringlótta með þessu áframhaldi... ég stenst aldrei freistinguna og geri allt sem þú setur hérna inn... Ætlaði nefnilega að fara að þakka þér fyrir æðislega uppskrift að lionbar súkkulaðibita kökunum :D og get líka orðað það eins og þú væntanlegum 2 kg á kroppin er búin að henda 3x í kökurnar eftir að ég prófaði fyrst ..... já á viku ;) Kill me:) en mikið rosalega er gott að borða hahahah

    kveðja úr sveitinni
    Sibba

    ReplyDelete
  7. Hehe Sibba,ég er ánægð með þig! Það er bara svo gott og gaman að borða...hvaða máli skipta 1-2 kíló til eða frá ;) ;)

    ReplyDelete
  8. Vá þvílíkt girnilegt!! Þetta mun ég pottþétt prófa við tækifæri.
    Ég er líka búin að gera eina uppskrift af Lion Bar kökunum og sá skammtur var kláraður mjög fljótlega :) Er búin að kaupa í aðra tvöfalda.
    Mig langar líka að segja þér að þú ert svo dugleg alltaf og svo mikið til fyrirmyndar á heimilinu! Þekki þig ekkert en maður sér það bara á bloggunum þínum :)

    Knús til þín og þinna
    Anna

    ReplyDelete
  9. Takk fyrir innlitið og kommentið Anna. :)

    Það gleður mig að fólk hafi gaman af því að skoða síðuna mína og prófa uppskriftirnar..

    knús! :)

    ReplyDelete