Sunday, December 25, 2011

Okkar jól..

---

Á Aðfangadag stóð ég í eldhúsinu í 5 tíma nánast samfleytt. Ég settist ekki niður fyrr en matur var á borð borinn kl hálf 7. En öll vinnan var þess virði,og maturinn heppnaðist fullkomnlega þó ég segi sjálf frá. Á matseðli kvöldsins voru kalkúnabringur, maís frauð, sætkartöflu soufflé, sveppasósa,eplasalat, fylling og ofnbakaðar kartöflur.



Eftir matinn voru allir,gestir jafnt sem heimilisfólk, gersamlega afvelta,sem er auðvitað ekkert annað en rós í hnappagat kokksins,ekki satt? ;)





Kvöldið var yndislegt í alla staði,og snerist að venju mest um litlu jóla- og pakkasjúku strákana okkar. Þvílíkur æsingur og hamingja yfir hverjum einasta pakka. Love it! :)

---
















---

Gleðileg jól öll sömul! 

Takk fyrir að lesa og takk fyrir allar ellefu þúsund heimsóknirnar á nýja bloggið mitt. Það er ansi gott fyrir svona nóboddí eins og mig held ég barasta. :)


Jólakveðja,


r e g í n a :)

4 comments:

  1. Takk fyrir mig ástin mín, þetta var geggjað hjá þér :)

    ReplyDelete
  2. Yndisleg jól gleði við völd!!

    ReplyDelete
  3. Gleðileg jól sætu. Ég hefði sko verið til í þennan matseðil :)

    ReplyDelete
  4. Öss... svo myndarleg! Annars er það klippingin hans Árna sem stendur klárlega uppúr! Gríðarlega myndarlegur maðurinn:) Gleðileg jól mín kæra...

    ReplyDelete