..já á morgun,nánar tiltekið eftir ca.10 litlar klukkustundir kemur byggingarverkfræðingurinn Árni Kristinn heim. Og þar með lýkur 3 mánaða grasekkjulífinu. Amen.
Spennan á heimilinu er svo mikil að undirbúningur fyrir komu hans er svipuð og ef einhver konungborinn væri væntanlegur í heimsókn. Íbúðin er að verða extra glansandi fín,ég er búin að baka nokkrar plötur af lakkrístoppum ,súkkulaðibitakökum og eitt stykki skúffuköku, Svo er ég að spá í því að láta elskulegu brauðvélina mín baka fyrir mig brauð umdir morguninn.
Ég er svo enn að reyna að ákveða hvað hann fær í kvöldmatinn á morgun. Það kemur allt í ljós,en ef hann fær að ráða þá geri ég fastlega ráð fyrir því að hann biðji um nautakjöt. Það er orðið allt of langt síðan hann hefur fengið almennilega,heimatilbúna máltíð greyið.
Maður verður nú að dekra svolítið við þennan dugnaðarfork sem er búinn að vera aleinn í útlöndum án strákanna sinna og án sinnar alveg hreint mööögnuðu eiginkonu. Hann er búinn að vera undir þvílíku vinnuálagi,ca 200 % vinna í alltof langan tíma. Ég skil stundum ekki hvernig hann fer að. Ég væri allavega löngu brunnin út og væri ábyggilega eins og fílamaðurinn í framan eftir að hafa grenjað mig í svefn í 3 mánuði straight.
---
Hugsið ykkur að Árni hefur barasta ekkert átt heima hérna í Tröllanum með okkur. Hann náði tveimur nóttum hérna áður en hann fór aftur út til Seattle. Og þá var allt á hvolfi,nýmálað og allt bókstaflega útum allt. Ég hlakka til að deila nýja heimilinu okkar loksins með honum. Þetta er bara nánast eins og maður sé að byrja að búa í fyrsta sinn.. ;)
---
Brot af huggulegheitunum sem bíða bóndans:
---
..og við fjögur bíðum hans líka :)
---
Bæ í bili,
r e g í n a :)

ég hlakka jafn mikið til að fá hann heim og þið!!
ReplyDeleteÞú ert líklega mesta dúlla í heimi Regína! Hann Árni er heppinn að eiga svona góða eiginkonu, frábærar móttökur sem hann fær :) Njótið jólanna saman kæra fjölskylda.
ReplyDeleteTakk Anna! :) :)
ReplyDeleteOg Eva Ruza,Árni er rooosa spenntur að hitta þig. ;)
Regína! Þú ert svo myndarleg að það hálfa.....
ReplyDeleteOG... æðislegar myndirnar þínar. Þarf að fara að heyra í þér og fá linsu tips!