..Ég eyddi fimmtudagskvöldinu mínu í það að baka uppáhalds súkkulaðikökuna mína. "Sunnudagskökuna". Mamma mín er baksturs-óð,og ég held það sé henni "að kenna" að mér finnist að helgin meigi ekki líða án heimabaksturs. Og þá verður þessi kaka ansi oft fyrir valinu.
Róbert Elí kemur snemma heim úr skólanum á föstudögum og ég ætla að reyna að standast blessaða kökuna þar til hann kemur heim svo að við getum fengið okkur saman.
---
Ég hef nefnilega alveg verið staðin að því að klára heila köku svo gott sem alein. Ég hef þurft að ljúga mig út úr svoleiðis atvikum,hef t.d sagt að ég hafi óvænt fengið gesti..en kem svo upp um mig með súkkulaði á nefinu og í peysunni jafnvel. Og einu sinni á bakvið eyrun m.a.s.
Ég skil ekki hvernig fólk fer að því að borða súkkulaði án þess að klína því útum allt. Mig langar að kunna það.
---
Hér er uppskriftin af uppáhalds skúffukökunni minni. Ég geri hana yfirleitt í tveimur hringformum,en hún er aðeins of lítil í stóra skúffu. En hún er fín í litla skúffukökuformið mitt.
Deig:
4 1/2 dl sykur
175 g lint smjörlíki
2 egg
4 1/2 dl hveiti
1 tsk. natron
1/2 tsk. lyftiduft
1 1/2 dl vatn (kalt)
3 tsk. vanillusykur
1 dl. kakó (dökkt)
1 tsk. salt
2 dl súrmjólk
Hrærið sykri,smjöri og eggi saman þar til létt og ljóst.
Bætið þurrefnunum út í og hrærið.
Stillið á minnsta hraðann og hellið súrmjólk og vatni rólega út í.
Hrærið þar til deigið er orðið "létt".
(Munið að skafa innan úr hliðunum á skálinni og hræra pínulítið aftur.)
Hellið í form og bakið á 180 gráðum í 25-35 min.
Krem:
100 gr brætt smjörlíki
Ca. 6 dl flórsykur
3 1/2 msk. kakó (dökkt)
Uppáhellt kaffi(má vera svolítið sterkt)
3 tsk. vanillusykur
Flórsykri og smjöri hrært vel saman.
Vanillusykri og kakó hrært saman við.
Kaffi hellt út í þar til rétt þykkt er komin á kremið(eina matskeið í einu).
Kremið á ekki að vera of þykkt.
Það er ekkert kaffibragð af kreminu,svo að engar áhyggjur þið sem eruð ekki svo heppin að drekka kaffi.
Játning dagsins: Ég tvöfalda krem uppskriftina. Því að ég er svo mikil súkkulaðiskessa og svo er það barasta ekkert alltaf þannig að "less is more".
Kreminu er hellt yfir kalda kökuna og látið standa í allavega hálftíma.
Ég strái svo kókosmjöli yfir..það minnir mig svo á skúffukökuna hennar mömmu.
(en þegar ég á ekki kókosmjöl fegra ég kökuna með smá flórsykri)
Svo algert möst að sporðrenna henni með ísköldu mjólkurglasi.
Ég myndi sýna ykkur mynd en stóra vélin mín er látin,blessuð sé minning hennar!
Ég myndi sýna ykkur mynd en stóra vélin mín er látin,blessuð sé minning hennar!
---
Bon appetit elskurnar!
---
regína

mmmm mikið er þetta girnilegt. Held að maður þurfi að prufa þesa.
ReplyDeleteJá mikið er ég sammála að það þarf að vera soldið mikið krem svo það sé eitthvað varið í þetta.
Ohh ég elska skúffukökur, geri einmitt alveg eins krem og þú. Mamma mín bakar og bakaði þegar við vorum krakkar oft um helgar, það er svo endalaust kósý ;)
ReplyDeleteNúna verð ég að gera eina um helgina...klárt mál :)
Mér skal takast að kommenta hérna!
ReplyDeleteYess það hafðist! IE hefur bara verið eitthvað heimskur áðan.
ReplyDeleteMig langar í köku!
Seldir mér þessa köku, og svei mér ef mér líður ekki aðeins betur með tómu ís LÍTRA dolluna við hliðina á mér (einmitt hún var kláruð fyrir hádegi og étin beint úr umbúðunum) .. sumir sykurfíkar sko, -dæs !
ReplyDeletemér líður illa af hungrinúna. Er að verða pirruð og allt sko. Takk fyrir þetta ömurlega blogg
ReplyDeletebless
Þessi kaka er náttla bara best í heimi!! Hef bakað hana vændræðalega of oft. Þarf að prufa að baka muffins úr henni, hljómar vel.
ReplyDeleteVinnufélagarnir elska mig mest þegar ég kem með hana í vinnuna og einn sagðist óska þess að ég væri mamma hans, eftir að hafa borðað hana um daginn. Veit ekki alveg hvað mér á að finnast um það samt...
Besta blogg í heimi :)
Kv, Helga Magga
mmmm ég panta svona köku í næsta hádegishitting!:)
ReplyDeletesysta
Slegið Systa!
ReplyDeleteGerði þessa köku í gær, hún er geggjuð.
ReplyDeleteVið Davíð fórum svo í leikhús um kvöldið og ég fékk sms frá barnapíunni 30min eftir að við fórum og þar stóð "þetta er besta kaka í heimi" :)
Takk fyrir uppskriftina mun pott þétt gera hana aftur :)
Kv Linda
Mmmm ég verð að prófa þessa, hef alltaf bara notast við Betty vinkonu mína hehehe *roðn*
ReplyDelete-LV
Jeij,gaman að heyra Linda! Já þessi kaka er svo góð! :)
ReplyDelete