Sunday, October 16, 2011

Sunnudags.

Kósýkvöldið okkar Róberts náði nýjum hæðum seinasta fötudagskvöld þegar Maggi vinur hans Árna mætti með sendingu frá mínum yndislega eiginmanni. Ég fékk svo falleg og fín blóm og svo fengu strákarnir allir pakka úr dótabúðinni.





Takk aftur elsku Árni minn og takk Maggi fyrir að vera hans sérlegi aðstoðarmaður. :)

Nú sakna ég hans Árna míns bara enn meira! En á morgun eru liðnar 4 vikur síðan hann fór út. Það er allavega ekki hægt að segja annað en að tíminn líði hratt sem gerir þetta auðveldara.

---


Ég er farin að fá mér rótsterkt sunnudagskaffi til að reyna að fá smá skammt af auka orku eftir veikindahelgi og lítinn svefn undanfarnar vikur..Ég ætla svo að gæða mér á þessari elsku með..


Gleðilegan sunnudag elsku þið!

8 comments:

  1. ó my! má ég koma og fá kaffi og kannski meira af þessari köku! mikið áttu yndislegan eiginmann! vá hann saknar ykkar allra náttúrulega miklu meira, svona einn úti.. knús rexa og borðaðu 2 sneiðar af þessari köku fyrir mig!

    kv. Eva María

    ReplyDelete
  2. ohhh fokk hvað mig langar í þessa köku! hvernig er kremið og hvernig kaka eridda og nenniru að geyma eina sneið fyrir mig og ég kem og passa þig á miðvikudagskvöldið. Ok?

    og árni fallegi að gera sona...fallega líka sendingin sem ég fékk frá honum mannstu :), hahaha djókurinn minn góði

    ruz

    ReplyDelete
  3. Mikið væri ég til í að fá þig í kaffi Eva sænska! :)

    Eva Ruza,þetta er skúffukaka(ekki í skúffu þó),og kremið er súkkulaði smjörkrem og nóg af því! Skal reyna að geyma eina slæs fyrir þig..

    ReplyDelete
  4. Oh, you´re killing me!
    Hvað kostar að senda köku með FedEx?

    En verði ykkur að góðu elskurnar mínar, það er gaman að sjá hvað þið voruð glöð :)

    ReplyDelete
  5. NAMMM girnilega kaka REX!! gaman að sjá á þér andlitið áðan ! Þú ert svo dugleg með guttana :* Tökum kaffi sem fyrst aftur ! :)
    kv. HE

    ReplyDelete
  6. ohhh meeeen ég elska smjörkrem...

    takk fyrir sendinguna árni , love u always, múhahahahah

    ruz

    ReplyDelete
  7. ég kann ekki að kommenta á þetta blogg þitt Regína! en þessi kaka er að fara með mig!!!

    systa sísvanga

    ReplyDelete
  8. Sko Systa,þú gast það! :)

    En já þessi kaka var rosa góð og kláraðist skuggalega hratt...

    ReplyDelete