Sunday, October 9, 2011

3 vikur..and counting!

Nú er ég búin að vera "einstæð" í 3 vikur. Ég verð nú að viðurkenna að þetta er búið að vera auðveldara en ég bjóst við. Ég hef aldrei í lífinu verið jafn skipulögð. Ef skipulagið klikkar,þá er allt ónýtt.

Ég er m.a.s loksins búin að taka upp úr öllum kössum! Það er rosa afrek,því að eg lýg því ekki að íbúðin var yfirfull af stútfullum kössum sem mig kveið svo mikið fyrir að taka upp úr. Herbergið okkar Árna var t.d ALVEG fullt af stórum kössum. En ekki lengur,jibbí!!

---

Við hjónin fengum þá afbragðs hugmynd að skipta um herbergi við Róbert og Birki,sem eru saman í herbergi. Við ætlum þá að hafa lítið og kósý hjónaherbergi og leyfa þeim að eiga stórt og flott strákaherbergi í hjónaherberginu í staðinn. EN..til þess að þetta sé allt hægt þá þarf að taka hjónarúmið í sundur OG kojuna þeirra líka. Og það tók Árna mjööög langan tíma að setja þessa koju saman.

Svo að þessu verður ekki hrint í framkvæmd fyrr en Árni verður kominn heim. Sem Fröken Óþolinmóð er ekki að gúddera. Það þarf auðvitað allt að gerast í fyrradag hja mér. Og mjög erfitt fyrir mig að sætta mig við það þegar hlutirnir ganga ekki nógu hratt fyrir minn smekk.

Ég tók mig sem sagt til í vikunni og tók herbergið þeirra bræðra í gegn. Ég fór í gegnum ALLT dótið þeirra,sorteraði allt og fann stað fyrir allt þetta smádót,legó,risaeðlur,playmó og þetta tók mig ekki nema tvo og hálfan tíma takk fyrir. Ég viðurkenni það hér með að þeir eiga alltof mikið af dóti!

EN ég er ánægð með herbergið þeirra,það er voða plein og verður þannig á meðan ég held áfram að breinstorma hvernig ég ætla að hafa herbergið það. Ég er svo tóm að þá hálfa væri hellingur.

Svona er herbergið þeirra núna:




Hin hliðin á herberginu er svo óspennandi að ég nennti ekki að taka myndir af því. :) Þar eru bara dótakassar,hvít hilla og tómur hvítur veggur. Ég ætla nú ekki að dunda meira við þetta herbergi fyrr en þeira fara í stóra herbergið.

---

Annað verk sem bíður þess að Árni komi heim er fína borðstofuborðið sem við gerðum saman(mest hann samt). Borðplatan stendur inni í stofu hjá mér,en það þarf að bora hana fasta á borðfæturna og ég hætti mér ekki í það. Ég myndi klúðra einhverju og væntanlega slasa mig í leiðinni. Ég og borvél erum ekkert rosalega góðar vinkonur.

Ég hlakka til að sýna ykkur þegar borðið er tilbúið,borðplatan er allavega rosa flott. ;)

---

En nú þarf ég að skjótast með Róbert Elí á fótboltaæfingu.

Eigið góðan sunnudag,í (loksins) góða veðrinu. :)

regína


4 comments:

  1. ohh það er svo erfitt að vera svona "allt þarf helst að gerast í gær" manneskja ég er líka þannig. Ég væri líklegast búin að reyna að bora og eyðinleggja allt hahahahahaha
    En rosalega gaman að lesa kram frá BE

    ReplyDelete
  2. Duglega mamman, það er svo stutt í jólin!!
    Skil þig vel að vilja gera allt helst í gær, ég er þannig líka.
    Sniðug að láta þá fá stóra herbergið, fullorðna fólkið er líka svo takmarkað inni í þessum svefnherbergjum :)
    Kv, Helga Magga

    ReplyDelete
  3. REgína mín.
    Ekki bora..það boðar ekki gott.
    En mikið er ég glöð að allir kassar eru farnir, þá get ég loksins komið í heimsókn. Ég læt nebblega ekki bjóða mér í kassaheimili.

    Þú veist að ég lána hann Sigurð í hin ýmsu verkefni og hann hefur ekkert um málin að segja. Bara þú veist af því....

    Með bestu kveðju
    Eva Ruza
    BFF

    ReplyDelete