Ég mæli með því að fólk fari í gegnum geymslurnar hjá sér og selji hlutina sem liggja ónotaðir. Það eru nefnilega merkilega miklir fjármunir grafnir í geymslum hjá fólki. Og hver vantar ekki auka pening þessa dagana?
Ég ætla svo fljótlega að skella mér í Kolaportið og selja föt og með því..
---
Eins og ég hef sagt áður þá er ég rosalega ánægð með setu-og borðstofuna okkar. Það er ekki mikið eftir að gera þar,annað en að hengja á veggi,setja upp borðstofuljósið og svo auðvitað að skipta út borðstofuborðinu. Það á bara eftir að bora borðplötuna fasta á fæturna og lakka eina umferð í viðbót og þá er það reddí tú gó!
---
En sjónvarpsstofan er langt frá því að vera tilbúin. Ég á eftir að skipta út slatta þar svo ég verði sátt. Ég dunda mér ábyggilega við það næstunni. Ég ætti að geta það allt saman sjálf..nema að hengja sjónvarps ferlíkið upp. Ég þarf eitthvað heljarmenni í það. ;)
Mér finnst gott að taka myndir og skoða í tölvunni og brainstorma þannig hvað ég geti gert. Ég hef ágætis hugmynd um hvernig þetta verður. Engar gríðarlegar breytingar,en samt breytingar sem á eftir að muna mikið um. Hér eru "fyrir" myndirnar mínar(með hugmyndunum um breytingu). Ég skal svo setja inn "eftir" mynd þegar þetta er tilbúið.
---
Barnaherbergin eru svo alger hausverkur. Ég hélt ég væri með það allt fullkomnlega planað,en plönin eru fokin út um gluggann svei mér þá. Ég ætla að taka mér góðan tíma í það að plana herbergin,ég vil ekki hlaða húsgögnum inn nema vera alveg fullkomnlega sátt við það. Strákarnir hafa allavega rúmin sín og dótið á meðan. Enda finnst þeim þeir ekki þurfa neitt annað. :)
---
En nú er ég þotin. Fyrsta helgina mín ein með strákana og það er eins gott að gera eitthvað skemmtilegt með þeim. :)
Bless í bili,
r e g í n a
:)


Bjútiful stofa hjá þér stelpa! Hlakka til að sjá meira :)
ReplyDeleteÞað er aldeilis orðið flott hjá ykkur Regína! Ættir að fara að taka þetta að þér.
ReplyDeleteTakk svo mikið! :)
ReplyDeleteRosaleg flott setu borðstofan!
ReplyDeletekv.Elísabet apríltútta