Uuuuu..við skulum bara sópa þeirri yfirlýsingu undir teppið með det samme. Undanfarna viku hefur gert vart við sig þessi líka rosalegi Seattle söknuður. Söknuðurinn magnast á hverjum degi og nú er svo komið fyrir undirritaðri að ég skoða reglulega vefmyndavél í beinni af uppáhalds stöðunum í uppáhalds borginni og sit svo með tár niður á axlir og snýti mér hressilega í vasaklútinn(eða..svona næstum því). Það er svo ekki að hjálpa til að í Seattle er búið að vera geggjað SUMAR(íslendingar spyrja sig væntanlega "Sumar? hvað er það?") að undanförnu;heiðskírt og 30 gráður plús upp á dag.
Á meðan frýs ég bara í hel í 7 gráðunum og vindkælingunni hérna á Íslandi.
Nei nei,svo bitur er ég nú ekki alveg. Ég vildi hvergi annarstaðar vera akkúrat núna en á Íslandi. Ísland er besti staðurinn fyrir strákana mína í dag,og Ísland er bara best. En ég sakna samt Seattle. Miklu meira en mig hefði grunað. Alveg miklu MIKLU meira.
Í gærkvöldi þegar við Árni vorum á leiðinni á smá kvöldrúnt,ég gersamlega sliguð(kannski ekki alveg svo dramatískt,en samt..) af Seattle söknuði,þá sá þetta yndislega fallega Ísland mitt um að kippa mér niður á jörðina aftur. Á himninum var nefnilega þessi líka þvílíka Norðurljósa sýning. Ég hef ekki séð svona björt og lifandi Norðurljós síðan ég veit ekki hvenær. Þau voru pottþétt bara þarna til þess að ég myndi hætta þessu voli og væli um einhverja borg í hinni klikkuðu(en samt ó svo yndislegu) Ameríku.
Þetta hefði ég aldrei séð í Seattle. :)
---
Nú eru bara 9 ógeðslega alltof stuttir dagar í það minn heittelskaði yfirgefi hinn réttnefnda Klaka og haldi til hennar sígrænu Seattle minnar. Mér finnst það ógeðslega sorglegt,jisús.
Ég ætla að reyna að hugsa ekki um það fyrr en ég kveð hann á flugvellinum. Sjáum til hvernig það gengur...
---
Nóg um að vera næstu daga: mála,flytja,smíða,bora,negla,taka upp úr kössum,setja saman húsgögn. Bissí bissí bissí!
Nú erum við búin að ákveða litina á hvert herbergi svo að þá er bara að drífa sig að kaupa málninguna.
Dökkgrár inni hjá Róberti og Birki(einn veggur)
Fallegur og bjartur gulur inn til Gunnars(einn veggur):
"Sveppagrár" inn í hjónaherbergið(allir veggir). Við höfum verið með sama litinn síðan 2005 :)
Ótrúlega þægilegur litur í svefnherbergi.
---
En nú er kominn tími á morgunskokk í fallega kalda veðrinu :) Ég ætla að reyna að vekja Árna og draga hann með mér. Ég næ að hlaupa svo mikið lengra ef ég get blaðrað á meðan ég hleyp.
---
REGÍNA
---
Nokkrar myndir í restina:



Gangi þér vel að koma ykkur fyrir og mála og gera og græja. Við erum búin að vera með sama litinn á svefnherberginu okkar síðan 2000, ótrúlega þægilegur fölgrænn litur, gat ekki hugsað mér annað en mála aftur í sama lit á nýjum stað, þannig ég skil þig mjög vel.
ReplyDeleteÞú verður að nýta tækifærið og heimsækja Árna, rétt til að kíkja í Target og draga úr Seattle söknuði ;)
kv,Herdís (sem fékk ekki raflost við að commenta)
Já vá það hlýtur að vera skrýtið að vera svona bara allt í einu komin heim, vá hvað ég skil þig!! Hlakka samt til að vera í þínum sporum, þó að það verði ekki nema þá í heimsókn næstu árin.. En ég er alveg sannfærð um að ég eigi eftir að sakna veðurfarsins alveg HRÆÐILEGA. Svo þægilegt að vera með börn í svona góðu veðurfari.
ReplyDeleteLíst obboðslega vel á litina og heimta myndir af afrakstrinum á öllu smíðeríinu o.s.fr. xxx
Ég skil þig mjög vel... ísland er og verður alltaf best í heimi en það er líka yndislegt í úglandinu... og þá sérstaklega veðurfarið... Held það því verði sárt saknað þegar maður flytur heim ( í ljósi þess að ég skrifa þessa færslu í stuttbuxum á leið útí 26 gráður) Lýst rosalega vel á allt stússeríið með heimilið og hlakka til að sjá afrakstur af borðstofuborða föndri ;)
ReplyDeleteKv frá Be
S
Gleymdir nottlega að nefna að hér er líka þín ástkæra Eva Ruza...búin að bíða í 365 daga eftir fallegu vinkonu sinni, eins og tryggur hundur!
ReplyDeleteMér hlakkar til að koma í sveppaherbergið og blá og græna og liggja í sófanum þínum og hanga og sakna árna með þér. Get ekki beðið.
Hlakka líka mega mikið til næstu helgi, þá verð ég geðveikt sæt í nýjum fötum með nýtt hár og ætla í sleík við árna.
Þú passar Sigga á meðan fyrir mig frammi.
Love
Swingerinn