Wednesday, September 7, 2011

Heimavinna..

Nú fer að koma að því að við fáum íbúðina okkar(hef ég nokkuð talað um það áður hohoho?).

Við ætlum að smíða okkur borðstofuborð eins og einhverjir vita nú þegar,og ég lofa að setja mynd af því hingað inn þegar það er tilbúið. Ég vona að það heppnist jafn vel og ég sé það fyrir mér. Fyrirmyndin af borðinu er tekin af einni af minni uppáhalds síðu; Stylizimo.com, og er alveg rosalega einföld. Okkur langar að hafa borðið extra langt svo að það henti vel fyrir matarboð og aðrar veislur. Það er bara spurning hvað fæturnir leyfa,við höfum það allavega eins langt og mögulegt er..með tilliti til plássins í íbúðinni að sjálfsögðu.

Hér er borðið:

Og HÉR er linkur á það hvernig borðið er gert.
Ég á bara eftir að ákveða í hvaða lit ég ætla að lakka borðplötuna.
---

Svo hefur mig langað lengi til þess að gera mér sófaborð úr trébrettum. Fólk hefur sett upp stór augu og splæst í "hissa svipinn" þegar ég hef nefnt það,en núna er þetta út um allt er virðist og ég ekki jafn skrýtin fyrir vikið. :) Ég held ég prófi allavega..held þetta eigi eftir að fara vel með nýja sófasettinu.  

Frábær lausn þar til ég rekst á drauma sófaborðið,sem hefur ekki enn fundist..





Ég myndi reyndar sleppa hjólunum.  Sé fyrir mér að borðið færi alltaf á óþarfa flakk,þökk sé litlum skæruliðum ;)
---

Þetta eru allvega ódýrar og einfaldar lausnir,sem sagt: vel kreppuvænar.

---

Ef þetta gengur vel þá er ég með langan lista af hlutum sem ég ætla að prófa að gera sjálf (með hjálp smiðsins míns,Árna Kristins auðvitað).

Til dæmis:

-Hús fyrir strákana á pallinn
-Skrifborð í hjónaherbergið
-Bekkur og borð á pallinn
-Blómapottar á pallinn
-Borðstofu ljósakróna
-og fullt fullt fleira..


-Verst hvað ég er óþolinmóð og ekkert sérstaklega handlagin. Svo það verður spennandi að sjá hverju verður raunverulega hrint í framkvæmd ;)
---

Og takk allir fyrir öll innlitin á nýja bloggið mitt. :)
Maður fær samt ekki raflost við það að ýta á "komment" takkann ;)

---

Bæ í bili,
Regína.


7 comments:

  1. Það er svo gaman að gera sjálfur :) Er einmitt í sama pakkanum þessa dagana, reyndar ekki að smíða en að kaupa gamalt, pússa, lakka og mála. Gaman gaman, gangi þér vel með herlegheitin :) kv. Hrafnhildur Lilja

    ReplyDelete
  2. Takk Hrafnhildur! Þetta er rosa gaman..trúi líka vel að það sé gaman að gera upp gamalt. Ég geri það við tækifæri. Gangi þér vel með þitt ! :)

    ReplyDelete
  3. Vá hvað ég er sammála með ófinnanlegt sófaborð !!! Það er alltaf e-ð sem gerir það ekki geggjað. Bögg
    Kamni

    ReplyDelete
  4. en skemmtilegt! elska svona "föndur" þótt ég sé ekki alveg jafn stórtæk, að búa til mín eigin húsgögn er sennilega aðeins of mikið fyrir mig.. en ef maðurinn minn væri svona handlaginn myndi ég klárlega reyna.. hlakka til að sjá myndir ;) alltaf gaman að lesa bloggið þitt Regína mín.. knúsar og kossar frá Köben :)

    Kristbjörg

    ReplyDelete
  5. Ákvað að tjékka hvort ég fengi nokkuð raflost... Er annars i sömu pælingum fyrir nýja húsið mitt og það er bara alltof mikið sem manni langar í!!! Er líka að fara í e-ð svona föndur og er ein sú óþolinmóðasta í bransanum svo að það verður eitthvað stuð.

    Eitt sem ég var búin ap spá í með þessi vörubretti er að þegar maður er með svona strumpa þá þarf maður örugglega að pússa þetta í drasl svo það komi ekki flísar í litla putta. Kannski er það vitleysa í mér :)

    Vaki sko á næturnar (eini tíminn sem er frí) til að skoða hönnunarblogg og Bo bedre og H&H og önnur blöð. Enda er þetta viðbjóðslega skemmtilegt :)

    Ps. ég var einmitt líka búin að spá í gulan (eða jafnvel fjólubláan) lit á annað strákaherbergið (er með eitt svefnherb. og eitt leikherb.) og það er bara ekkert stelpulegt :)

    Og já takk fyrir skemmtilegt blogg!

    ReplyDelete
  6. Til hamingju með nýja HÚSIÐ Kristín..Fullorðins!! :)

    En þetta er rosalega skemmtilegt,það sem maður getur eytt miklum tíma og orku í að pæla í húsgögnum og veggmálningu.. :)

    --

    og takk allir hinir fyrir kommentin! hugrökk erðu þið og ómeidd vonandi ;) Þið eruð skemmtileg! :)

    ReplyDelete
  7. Úúúú list vel á, hlakka til að sjá myndir! Ég er einmitt að byrja að föndra smá, yfirfara kommóðu og eldhúsborð. :)

    ReplyDelete