Saturday, October 27, 2012

- - - - -


---

Ég held það sé óhætt að lýsa þetta blogg látið. Það er bara ekkert að gerast hérna.

Ég setti þó inn myndir frá Seattle ferðinni okkar á nýju myndasíðuna mína. Yndisleg fer að baki!

Ætli ég haldi ekki myndasíðunni en loki blogginu...

Myndirnar eru HÉR


r e g í n a  :)

---



Friday, October 12, 2012

Bleikt.


---



Það var meira en að segja það að finna eitthvað bleikt á þessu heimili í morgun. En strákarnir fengu nýja bleika kisusokka í tilefni dagsins og voru rosa fínir auðvitað. Róbert skildi samt ekki afhverju sokkarnir hefðu þurft að vera bleikir OG með mynd af kisu á í þokkabót..en var tilbúinn að fórna sér fyrir málstaðinn að sjálfsögðu.

Ég keypti mér svo þessa fallegu Kimmidoll í tilefni dagsins:



..svo bleik og falleg.
---

Það er frábært að sjá hvað fólk er að taka mikinn þátt í þessum degi. Það er allt bleikt,hvert sem litið er.


Wednesday, October 10, 2012

Úbbosí.


---

Ja hérna..ég er barasta enginn bloggari lengur. 

En ég er allavega búin að vera alger meistari það sem af er meistaramánuði. Jibbí fyrir mér. Fyrir utan það að ég get ekki farið snemma að sofa! Hvað er það?

---

Annars er ég eins og lítið barn að bíða eftir jólunum þessa dagana,þar sem það eru bara 9 dagar þar til við hjónin leggjum af stað í smá kærustuparaferð til Seattle. Tónleikar,bjór,fótboltaleikur,fullt fullt af mat,smá Target og HM kannski...Aaaaah já! hvað þetta verður ljúft. 

Ég hlakka til að eiga deit við þessi krútt í Showbox at the Market eftir 11 daga!


Og þessa fola,sama kvöld..


---

9 dagar,and counting...!

Monday, October 1, 2012

Meistaramánuður


---

Nú ætla ég í fyrsta sinn að taka þátt í Meistaramánuðinum. Ég ætlaði hvort eð er að byrja í átaki í dag. Eins og alla daga sosum,en hey..batnandi konu er best að lifa ekki satt?

---

Í meistaramánuðinum ætla ég:

..að fara fyrr að sofa.
..hreyfa mig að lágmarki 5 sinnum í viku.
..prófa mig áfram með holla rétti.
..ekki drekka neitt gos. (nema smá þegar ég verð í Seattle)
..eiga mikið mikið af gæðastundum með strákunum mínum.
..eiga allavega tvö deit-kvöld með Árna.
..njóta lífsins og æfa mig í því að lifa í núinu.
..og alveg fullt sniðugt í viðbót!

Svo að búið ykkur undir overload af myndum hérna inni..ég ætla að vera dugleg að skrásetja þennan mánuð;alla hreyfingu og nýja og breytta matarræðið. 

Svo skora ég auðvitað á alla að vera með í meistaramánuðinum.

Skoða meira um meistaramánuð HÉR

---


---


Tuesday, September 25, 2012

Fallegt.


---

Það er svo mikið auðveldara að vakna á svona dögum..


..aah..yndislega íslenska haustið upp á sitt besta.
:)

---